Handbolti

Viggó fór á kostum í sigri West Wien

Anton Ingi Leifsson skrifar
Viggó var flottur í kvöld.
Viggó var flottur í kvöld. vísir/ernir
Viggó Kristjánsson var magnaður er West Wien vann ellefu marka sigur, 34-23, á Retcoff Graz í austurrísku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

West Wien setti tóninn strax í upphafi í kvöld en þeir voru fljótlega komnir í góða forystu og leiddu svo í hálfleik með sex mörkum 19-13. Eftirleikurin auðveldur í síðari hálfleik.

Viggó gerði sér lítið fyrir og skoraði níu mörk. Hann var lang markahæsti leikmaður vallarins en einungis eitt af þessum níu mörkum komu af vítalínunni.

Guðmundur Hólmar Helgason gerði tvö mörk og Ólafur Bjarki Ragnarsson bætti við einu en West Wien er með einn sigur í fyrstu tveimur leikjunum í úrslitakeppninni í Austurríki þar sem fimm lið eru í svokölluðum úrslitakeppnisriðli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×