Körfubolti

Valur vann tíunda leikinn í röð og naumur sigur Keflavíkur gegn botnliðinu

Anton Ingi Leifsson skrifar
Helena í leik með Val gegn Keflavík fyrr í vetur.
Helena í leik með Val gegn Keflavík fyrr í vetur. vísir/vilhelm
Valur vann tíunda leikinn í röð í Dominos-deild kvenna er liðið hafði betur gegn Stjörunni í Origo-höllinni í dag, 83-60.

Valur vann fyrsta leikhlutann með sex stigum og virtist vera gera út um leikinn í öðrum leikhlutanum sem Valsstúlkur unnu með fjórtán stigum. Þær leiddu í hálfleik 40-20.

Gestirnir úr Garðabæ hættu ekki og náðu aðeins að minnka muninn en ekki það mikið að úr varð mikil spenna. Tíundi sigur Vals í röð niðurstaðan en Valur er áfram í þriðja sætinu, tveimur stigum á eftir toppliðum KR og Keflavíkur.

Stjarnan í fimmta sætinu með 22 stig en gæti verið komið fjórum stigum á eftir úrslitakeppnissæti vinni Snæfell Hauka í síðasta leik umferðarinnar sem er í gangi þegar þetta er skrifað.

Helena Sverrisdóttir var frábær í liði Vals. Hún skoraði tuttugu stig, tók átta fráköst og gaf tólf stoðsendingar. Simona Podesvova gerði svo fimmtán stig, tók sex fráköst og gaf tvær stoðsendingar.

Í liði Stjörnunnar var það Danielle Victoria Rodriguez sem dró vagninn. Hún skoraði 27 stig, tók átta fráköst og gaf fimm stoðsendingar en næsti leikmaður var einungis með átta stig. Munaði um minna.

Brittanny var frábær í kvöld.vísir/vilhelm
Keflavík gekk illa að hrista af sér botnlið Breiðabliks er liðin mættust í Kópavogi í kvöld. Keflavík hafði þó að endingu betur, 71-67, eftir mikið japl, jaml og fuður.

Leikhlutar eitt og tvö voru eins og svart og hvítt. Keflavík skoraði einungis sjö stig í fyrsta leikhlutanum gegn þrettán stigum Blika en gestirnir fundu þjölina í öðrum leikhlutanum og skoruðu 26 stig.

Í hálfleik var því staðan 33-30, Keflavík í vil, en botnlið Blika hélt áfram að bíta frá sér og voru einu stigi yfir fyrir lokaleikhlutann, 52-51.

Það var mikil spenna í síðasta leikhlutanum en Keflavík hafði að lokum betur, 71-67. Þær eru því áfram með jafn mörg stig og KR í toppsætinu en Breiðablik er á botninum með tvö stig.

Brittanny Dinkins var stigahæst hjá Keflavík með 26 stig, átján fráköst og sex stoðsendingar en Birna Valgerður Benónýsdóttir bætti við tuttugu stigum og fimm fráköstum.

Sanja Orazovic gerði 26 stig fyrir Blika og tók þar að auki ellefu fráköst. Ragnheiður Björk Einarsdóttir átti flottan leik en hún skoraði sextán stig og tók níu fráköst.


Tengdar fréttir

KR áfram á toppnum

KR heldur toppsætinu í Dominos-deild kvenna eftir að liðið vann nokkuð öruggan sigur á Skallagrím á heimavelli í dag, 80-64.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×