Handbolti

Rhein-Neckar Löwen með öruggan sigur

Dagur Lárusson skrifar
Alexander Petterson.
Alexander Petterson. vísir/getty
Alexander Petterson og Guðjón Valur Sigurðsson voru báðir í eldlínunni þegar Rhein-Neckar Löwen bar sigurorð á Bergischer í þýsku deildinni í dag.

 

Fyrir leikinn var Rhein-Neckar í þriðja sæti deildarinnar með 33 stig en Bergischer var í áttunda sæti með 21 stig.

 

Rhein-Neckar var með yfirhöndina nánast allan leikinn og var staðan 15-9 fyrir þeim í hálfleiknum. Í byrjun seinni hálfleiksins náðu liðsmenn Bergischer að minnka muninn niður í tvö mörk en komust þó aldrei nær en það.

 

Liðsmenn Rhein-Neckar náðu síðan hægt og rólega að stækka forystu sína aftur og unnu að lokum sigur 26-20.

 

Guðjón Valur Sigurðsson skoraði eitt mark fyrir Rhein-Neckar á meðan Alexander Petterson skoraði fjögur.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×