Viðskipti innlent

Leggur 66°Norður til 3,2 milljarða í hlutafé

Hörður Ægisson skrifar
Helgi Rúnar Óskarsson
Helgi Rúnar Óskarsson
Bandarískur fjárfestingasjóður, sem gekk frá samkomulagi um kaup á minnihluta í Sjóklæðagerðinni 66°Norður í júlí í fyrra, hefur lagt félaginu til nýtt hlutafé að jafnvirði um 3,2 milljarða króna. Með hlutafjáraukningunni tryggir sjóðurinn sér tæplega helmingshlut í 66°Norður.

Helgi Rúnar Óskarsson, forstjóri 66°Norður, segir í samtali við Markaðinn að hlutafjáraukningin hafi klárast í desember á liðnu ári og hún komi til í beinu framhaldi af samkomulagi síðasta sumar um sölu á hlut til alþjóðlegs fjárfestingasjóðs í því skyni að tryggja fjármögnun á áframhaldandi uppbyggingu félagsins erlendis.

Markaðurinn upplýsti fyrst um kaupin þann 18. júlí síðastliðinn en ráðgjafarfyrirtækið Rothschild í London hafði umsjón með sölunni fyrir hönd 66°Norður. Þá var Lárus Welding, fyrrverandi bankastjóri Glitnis, einnig á meðal ráðgjafa seljenda í viðskiptunum. Ekki hafa fengist staðfestar upplýsingar um nafn kaupandans en samkvæmt heimildum er um að ræða bandarískan sjóð sem hefur ekki áður komið að fjárfestingum á Íslandi.

Hjónin Helgi og Bjarney Harðardóttir, sem eiga núna rúmlega helmingshlut í 66°Norður, komu fyrst inn í hluthafahóp fyrirtækisins 2011 og eignuðust það síðan að fullu tveimur árum síðar. Heildartekjur 66°Norður, sem rekur tíu verslanir hér á landi og tvær í Kaupmannahöfn, námu samtals um 3,86 milljörðum króna á árinu 2017. Fyrirtækið var hins vegar rekið með 115 milljóna króna tapi en hagnaður fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta (EBITDA) nam tæplega 161 milljón króna. Heildareignir í árslok 2017 voru um 3,3 milljarðar en eiginfjárhlutfall félagsins nam þá aðeins um 3,8 prósentum.

Helgi segir aðspurður í samtali við Markaðinn að afkoma 66°Norður hafi batnað á síðasta ári og að „heilbrigður vöxtur“ hafi verið í tekjum félagsins.




Tengdar fréttir

Bandarískur sjóður fjárfestir í 66°Norður

Bandarískur sjóður eignaðist í byrjun mánaðarins tæplega helmingshlut fyrir um 30 milljónir evra. Engar breytingar verða á stjórn eða lykilstjórnendum félagsins. Ráðgjafar seljenda í viðskiptunum voru Rothschild og Lárus Welding.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×