Erlent

Búast við 29 stiga frosti í Chicago

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Íbúar Chicago-borgar hafa verið hvattir til að halda sig innandyra.
Íbúar Chicago-borgar hafa verið hvattir til að halda sig innandyra. Getty/Terrence Antonio James
Mikið kuldakast gengur nú yfir miðvesturríki Bandaríkjanna og hefur þurft að loka skólum og vinnustöðum. Þar að auki hefur póstþjónusta stöðvast á stórum svæðum, en slíkt gerist afar sjaldan, að sögn AP fréttaveitunnuar.

Enn á að herða á kuldanum og er fólk hvatt til að halda sig innandyra. Strætisvögnum hefur verið breytt í hjálparstöðvar fyrir heimilislausa í Chicago en þar er gert ráð fyrir allt að 29 gráðu frosti í kvöld og með vindkælingu gæti kuldinn farið niður í 40 gráður.

Stofnunum á borð við dýragarð borgarinnar og söfnum verður einnig lokað í dag. Þá hafa ríkisstjórnirnar í Illinois, Wisconsin og Michigan lýst yfir neyðarástandi í ríkjunum vegna frosthörkunar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×