Íslenski boltinn

Forseti UEFA: Skiptir máli fyrir Ísland að meðlimum UEFA líki vel við formann KSÍ

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Guðni Bergsson, formaður KSÍ, fékk góðan stuðning í kosningabaráttu sinni í dag þegar forseti UEFA gaf honum óformlega stuðningsyfirlýsingu og sagði samskipti KSÍ og UEFA aldrei hafa verið betri.

Slóveninn Aleksander Ceferin var kjörinn forseti UEFA árið 2016 með miklum yfirburðum. Hann segist stöðu sinnar vegna ekki geta stutt formlega við bakið á neinum frambjóðanda hjá KSÍ en dregur ekki dul á að hann styðji Guðna.

„Ég verð þó að segja að ég ber mikla virðingu fyrir Guðna Bergssyni. Ég tel hann vera frábæran leiðtoga og KSÍ hefur aldrei átt í eins góðum samskiptum við UEFA og það gerir í dag með Guðna sem formann,“ sagði Ceferin í samtali við íþróttadeild í morgun.

Þekki Geir ekki mikið

Þegar Ceferin var kjörinn forseti UEFA var Geir Þorsteinsson formaður KSÍ og hann kaus mótframbjóðanda Ceferin. Forsetinn vill ekki segja að samband KSÍ og UEFA hafi verið slæmt er Geir réði málum.

„Það er erfitt að segja hvort þau voru slæm eða ekki og ég vil ekki dæma Geir því ég þekki hann ekki mikið. Staðreyndin er samt að samskiptin núna eru frábær og ég efast um að þau verði betri með öðrum manni í brúnni.“

Ceferin segir að Guðni sé ákaflega vel liðinn hjá UEFA og það skipti máli fyrir KSÍ.

Líkar öllum vel við Guðna

„Það líkar öllum vel við Guðna og treystu mér að það skiptir miklu máli varðandi framtíðarþróun íslenska boltans. Ísland er lítið land eins og Slóvenía, þaðan sem ég kem frá, en stórt land hvað varðar fótboltann síðustu ár. Þið ættuð að halda áfram á sömu braut því þannig þróast fótboltinn og Guðni er frábær formaður fyrir KSÍ.“

Ceferin segir að það hafi tekist góður vinskapur með honum og Guðna og segir sinn óformlega stuðning við Guðna ekki tengjast því neitt að Geir hafi ekki kosið hann á sínum tíma.

„Þetta er ekkert persónulegt af minni hálfu og fyrir mig er mikilvægt að tjá mig um hvað mér finnst og mér finnst að Guðni Bergsson sé góður formaður. Hann er ungur maður með framtíðarsýn fyrir fótboltann og það hefur ekkert með Geir að gera.“




Tengdar fréttir

Mikil togstreita hefur myndast 

Geir Þorsteinsson býður sig fram til formanns KSÍ en gegndi þeirri stöðu á árunum 2007-17. Hann vill efla félögin í landinu og breyta skipulagi KSÍ. Hann segir nauðsynlegt að lægja öldurnar í íslenskum fótbolta.

Guðni hvatti Geir til að hætta við

Guðni Bergsson, formaður KSÍ, hefur staðfest að hann hafi hvatt Geir Þorsteinsson til þess að hætta við að bjóða sig fram gegn honum.

Forseti UEFA: Guðni Bergsson er frábær leiðtogi

Aleksander Ceferin, forseti UEFA, talar fallega um Guðna Bergsson, formann KSÍ, í samtali við Vísi og segir samstarf KSÍ og UEFA betra núna en það hafi nokkurn tíma verið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×