Handbolti

Sverre færði sig um set á Akureyri: Kominn í þjálfarateymi KA

Anton Ingi Leifsson skrifar
Sverre handsalar samninginn.
Sverre handsalar samninginn. mynd/ka
Sverre Jakobsson er kominn í þjálfarateymi KA í Olís-deild karla en félagið staðfesti þetta á vef sínum í kvöld.

Sverre var leystur undan störfum hjá hinu Akureyrarfélaginu í Olís-deild karla, Akureyri, milli jóla og nýárs en hann hafði stýrt Akureyri frá því 2015.

Nú hefur KA ákveðið að bæta honum við þjálfarateymið sitt en hann mun aðstoða þá Stefán Árnason og Heimir Örn Árnason út tímabilið en Sverre er uppalinn hjá KA.

„Við viljum bjóða Sverre hjartanlega velkominn aftur í KA og hlökkum mjög að sjá til hans á hliðarlínunni,“ segir á heimasíðu KA en þar stendur enn frekar að stefnan er að halda liðinu í deild þeirra bestu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×