Körfubolti

Besta byrjun í sögu Denver Nuggets

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Nikola Jokic.
Nikola Jokic. vísir/getty
Hinn 23 ára gamli Nikola Jokic hefur gjörbreytt liði Denver Nuggets en félagið hefur aldrei áður náð eins góðum árangri í fyrstu 50 leikjum tímabilsins.

Jokic fór fyrir sínum mönnum gegn New Orleans í nótt er hann nældi í sjöttu þreföldu tvennuna í þessum mánuði. Hann var með 20 stig, 13 fráköst og 10 stoðsendingar í 35. sigri Denver á tímabilinu. Denver er því 35-15 sem er það besta í 50 leikjum síðan félagið var stofnað.

Félagið er einum sigurleik frá efsta sæti Vesturdeildarinnar og er á leið í úrslitakeppnina í fyrsta sinn síðan 2013.





Terry Rozier leysti svo Kyrie Irving vel af hólmi hjá Boston í nótt er hann skoraði 17 stig og gaf 10 stoðsendingar í yfirburðasigri á Charlotte.

Úrslit:

Boston-Charlotte  126-94

Miami-Chicago  89-105

NY Knicks-Dallas  90-114

Washington-Indiana  107-89

Minnesota-Memphis  99-97

New Orleans-Denver  99-105

Sacramento-Atlanta  135-113

Portland-Utah  132-105

Staðan í NBA-deildinni.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×