Lífið

Ed Sheeran tekur tvær heimsfrægar stjörnur með sér á Laugardalsvöllinn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ed Sheeran á tónleikum í íslenskum landsliðsbúningi.
Ed Sheeran á tónleikum í íslenskum landsliðsbúningi. Getty/Dave Benett
Tvær stjörnur slást í hópinn með Ed Sheeran á Laugardalsvellinum í sumar en um er að ræða sænsku poppstjörnuna Zöru Larsson og breska tónlistarmanninn James Bay. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Senu Live.

Uppselt er á tónleikana 10. ágúst og seldist upp á þá á skotstundu.

Enn er hægt að tryggja sér miða á aukatónleikana 11. ágúst, í sitjandi svæði A og B sem og standandi svæði, en sitjandi C svæði er uppselt á aukatónleikunum.

30 þúsund miðar eru í boði á tóleikanna og má búast við því að sextíu þúsund manns sjái Sheeran á  Laugardalsvellinum.

Miðasalan fer fram á tix.is.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×