Tónlist

Hlustaðu á nýju plötuna frá Flona

Stefán Árni Pálsson skrifar
Floni heitir Friðrik.
Floni heitir Friðrik.
Rapparinn Friðrik Róbertsson, betur þekktur sem Floni, gaf í dag út nýja plötu sem ber einfaldlega nafnið Floni 2.

Snemma á árinu tæmdi Floni allt út af Instagram-reikningi sínum og birti því næst mynd af plötuumslagi nýju plötunnar og útgáfudag.

 
 
 
View this post on Instagram
Floni 2 - 31. jan - comment ef þú ert spennt/ur! Artwork: @magnusyeah @k_tanman @jhnnkrstfr

A post shared by (@fridrikroberts) on Jan 14, 2019 at 4:21am PST

Það tíðkast að gefa út einhver lög af plötum í fullri lengd áður en platan sjálf kemur út, sem smáskífur eða eitthvað í þeim dúr, en ekkert laganna á Flona 2 hafa komið út áður.

Platan var tekin upp í 101derland, hljóðblönduð af Young Nazareth og hljóðjöfnuð af Glenn Schick. Plötuumslagið var hannað af Jóhanni Kristóferi Stefánssyni og Kjartani Hreinssyni og ljósmyndin á umslaginu tekin af Magnúsi Andersen.

Samefnd fyrsta plata hans kom út í lok ársins 2017 og hefur hann allar götur síðan verið einn vinsælasti tónlistarmaður landsins. Hlusta má á plötuna hans hér að neðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×