Íslenski boltinn

Dómarar láta gott af sér leiða á Akureyri

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hallgrímur Mar Steingrímsson verður væntanlega á sínum stað í KA-liðinu.
Hallgrímur Mar Steingrímsson verður væntanlega á sínum stað í KA-liðinu. vísir/bára
Það verða átök á Akureyri á morgun er nágrannaliðin KA og Þór mætast í úrslitaleik Kjarnafæðismótsins.

Ljóst er að fólk mun fjölmenna á þennan skemmtilega leik og um að gera því allur ágóði af leiknum mun renna óskiptur til  Grófarinnar sem er geðverndarmiðstöð.

Það er knattspyrnudómarafélag Norðurlands sem heldur utan um mótið og stendur fyrir þessu fallega framtaki.

Miðaverð er litlar 500 krónur á leikinn en einnig er tekið við frjálsum framlögum á staðnum. Það er því um að gera að njóta nágrannaslags og styrkja gott málefni í leiðinni. Leikurinn hefst klukkan 19.15.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×