Lífið

Sagði lögmanni Dr. Luke að skammast sín í nýbirtum vitnisburði

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Lady Gaga.
Lady Gaga. Getty/Frazer Harrison
Vitnisburður tónlistarkonunnar Lady Gaga í máli upptökustjórans Dr. Luke gegn söngkonunni Keshu var nýlega gerður aðgengilegur. Gaga virðist hafa orðið nokkuð heitt í hamsi í samskiptum við lögmann Dr. Luke og þá lýsir hún því yfir að hún trúi ásökunum Keshu um kynferðisofbeldi í einu og öllu, að því er fram kemur í hinum nýbirtu skjölum.

Kesha kærði Dr. Luke, sem heitir réttu nafni Luke Gottwald, fyrir kynferðisbrot, kynferðislega áreitni og kynferðislegt ofbeldi í október árið 2014. Kesha hvarf frá stefnunni tveimur árum síðar en Dr. Luke kærði hana þá á móti fyrir ærumeiðingar. Í september árið 2017 var tekin skýrsla af Lady Gaga vegna málsins, sem nýlega var gerð opinber. Gaga hefur ætíð verið opinskár stuðningsmaður Keshu í málaferlum þeirrar síðarnefndu og Dr. Luke.

Byrjuð að gráta áður en skýrslutakan hófst

Skýrslan hefst á því að lögmaður Gaga gerir grein fyrir því að skjólstæðingur sinn sé þolandi kynferðisofbeldis. Þá sé hún þegar grátandi við upphaf skýrslutökunnar.

Lögfræðingar Dr. Luke inna Gaga svo eftir því hvort ásakanir Keshu um kynferðisbrot hefðu haft áhrif á mannorð hans. Gaga sagðist ekki geta svarað því hvaða álit heimsbyggðin hefði á upptökustjóranum en fyrir sitt leyti væri svarið skýrt.

„Þannig að ef þú ert að biðja um skoðun mína á orðspori hans, ég myndaði skoðun mína á honum og orðspori hans þegar ég sá hana í þessu bakherbergi. Það var mynd af svolitlu sem henti mig og ég fann það og vissi af öllu hjarta að hún var að segja sannleikann og ég trúi henni.“



 
 
 
View this post on Instagram
Free Kesha

A post shared by Lady Gaga (@ladygaga) on Feb 24, 2016 at 3:12pm PST

„Ekki ranghvolfa augunum framan í mig“

Þá fullyrti hún að Kesha hefði sagt sér frá kynferðisbrotum Dr. Luke. Þegar lögmaður þess síðarnefnda spurði Gaga hvort hún byggi yfir sönnunargögnum þess efnis stóð ekki á svari.

„Nú, þú veist, þegar karlmenn beita konur ofbeldi bjóða þeir fólki ekki í heimsókn til að fylgjast með,“ sagði Gaga.

Þá má lesa af vitnisburðinum af Gaga hafi orðið nokkuð heitt í hamsi þegar lögmaður Dr. Luke innti hana eftir því hvort hún tryði því að fólk lygi til um kynferðisofbeldi.

„Af hverju í veröldinni myndi þessi stelpa segja öllum heiminum að þetta hafi gerst? Af hverju í veröldinni? Veistu hvað þolendur þurfa að líða? Veistu hvernig það er að segja frá? Ekki ranghvolfa augunum framan í mig. Þú ættir að skammast þín,“ sagði Gaga.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×