Erlent

Trump sagður færast nær því að lýsa yfir neyðarástandi vegna múrsins

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Donald Trump er forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump er forseti Bandaríkjanna. AP/Jacquelyn Martin
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er sagður vera farinn að undirbúa jarðveginn fyrir það að lýsa yfir neyðarástandi svo hann geti tryggt sér fjármagn til þess að byggja hinn umdeilda múr á landamærum Mexíkó og Bandaríkjanna. Einn helsti bandamaður Trump á þingi segir að múrinn muni rísa, á einn eða annan máta.

Trump hafði áður hótað því að lýsa yfir neyðarástandi til þess að tryggja sér þá tæpu sex milljarða dollara sem hann telur að þurfi til þess að reisa múrinn á landamærunum. Var sú hótun sett fram er hin 35 daga lokun alríkisstofnana stóð yfir vegna deilna Repúblikana og Demókrata um fjármögnun þeirra, en Demókratar þvertaka fyrir að veita fjármagn til byggingu múrsins.

Sjá einnig: Trump heldur sig á hliðarlínunni við góðar undirtektir þingmanna

Að lokum samþykkti Trump málamiðlum sem fól í sér að fjármagna skyldi stofnanirnar til þriggja vikna og í millitíðinni væri hægt að semja um byggingu múrsins. Þær samningaviðræður hafa þó ekki gengið vel og greinir Guardian frá því að Trump hafi fundað með sínum helstu ráðgjöfum til þess að undirbúa jarðveginn fyrir það að hann lýsi yfir neyðarástandi.

Það myndi gera honum kleift að sækja fjármagn sem þingið hefur úthlutað í önnur verkefni og færa það yfir í byggingu múrsins. Slík aðgerð yrði þó afar umdeild enda almennt litið svo á að ekki skuli nota löggjöfina sem heimilar forseta að lýsa yfir neyðarástandi nema á stríðstímum eða vegna hryðjuverkaárasa, svo dæmi séu tekin. 

Lindsey Graham fyrir utan Hvíta húsið í gær.AP/Pablo Martinez Monsivais

Efasemdir innan raða Repúblikana

Talið er víst að Demókratar myndu berjast hatrammlega gegn slíkri aðgerð af hálfu forsetans og þá eru uppi efasemdir innan raða Repúblikanaflokksins um fýsileika þess að Trump lýsi yfir neyðarástandi. Það gæti sett hættulegt fordæmi og gert það að verkum að framtíðarforsetar úr röðum Demókrata geti nýtt sér slíkt fordæmi til þess að lýsa yfir neyðarástandi til þess að koma stefnumálum þeirra í framkvæmd.

Sjá einnig: Donald Trump sagður hafa lúffað og vera gunga

Lindsay Graham, þingmaður og einn helsti bandamaður Trump á þingi, gefur þó lítið fyrir þá gagnrýni og hvatti samflokksmenn sína til þess að styðja Trump. Í vikunni tísti hann um að ef ekki næðist samkomulag á þingi væri Trump nauðbeygður til þess að lýsa yfir neyðarástandi til þess að byggja múrinn.

Þá var Graham mættur á sjónvarpsstöðina Fox News í gær þar sem hann ræddi við Sean Hannity um möguleikann á því að Trump lýsi yfir neyðarástandi.

„Fyrir alla þá sem eru að velta því fyrir sér hvernig þessi kvikmynd endar. Hún endar Trump-megin. Við erum að fara að byggja þennan vegg á einn eða annan máta,“ sagði Graham og bætti við því að það væri ekkert sem bannaði Trump að lýsa yfir neyðarástandi.

Sjá einnig:Fallegi múrinn sem varð að girðingu

Þingmenn úr röðum Demókrata og Repúblikana hafa um tvær vikur til að ná samkomulagi um fjármögnun alríkisstofnanna áður en að hið tímabundna samkomulag rennur út og þær loka að nýju.


Tengdar fréttir

Trump tilbúinn til að loka alríkisstofnunum á nýjan leik

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er tilbúinn til að loka þriðjungi alríkisstofnanna Bandaríkjanna á nýjan leik í febrúar, náist ekki samningur sem honum þykir ásættanlegur um byggingu múrs á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó.

Trump-liðar reiðir út í forsetann: Donald Trump sagður hafa lúffað og vera gunga

Margir af bandamönnum og helstu stuðningsmönnum Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, eru ósáttir við að forsetinn hafi gefið eftir í deilunni um vegginn og bundið endi á lengstu lokun alríkisstofnanna í sögu Bandaríkjanna, án þess að fá fjármagn til að hefja byggingu múrs á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×