Innlent

Rúta með ungmenni fór út af við Víðihlíð

Birgir Olgeirsson skrifar
Frá vettvangi nú í kvöld.
Frá vettvangi nú í kvöld. Lögreglan á Norðurland vestra
Hópbifreið á suðurleið lenti utan vegar skammt sunnan við Víðihlíð í Víðidal á tíunda tímanum í kvöld. Í rútunni voru 31 með ökumanni en farþegarnir voru allir ungmenni á aldrinum 16 til 19 ára.

Í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi vestra kemur fram að bifreiðin var á hjólunum allan tímann og engan sakaði. Vel gekk að ná rútunni upp með aðstoð björgunarsveita og bónda af nálægum sveitabæ á stórri dráttarvél.

Fólkið fór í gistingu í nágrenninu og ætlar að bíða með áframhald ferðar sinnar til morguns.

Lögreglan tekur fram að mikil hálka er á vegum á þessum slóðum og mjög hvasst. Eru ökumenn beðnir um að sýna varúð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×