Sport

Heillaði heiminn með gleði sinni eftir að hafa komist í gegnum mjög erfiða tíma

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Katelyn Ohashi hrífur flesta með sér þegar hún tekur gólfæfinguna sína.
Katelyn Ohashi hrífur flesta með sér þegar hún tekur gólfæfinguna sína.
Hún sló í gegn á netinu með fimleikaæfingu upp á tíu en það vita færri að glaða fimleikastjarnan úr UCLA skólanum hefur komist í gegnum erfiðleika og depurð á sinni ævi.

Netverjar gjörsamlega féllu fyrir fullkomri gólfæfingu Katelyn Ohashi og hafa horfa á hana hátt í hundrað milljón sinnum á einni viku. Gleði, dans og tilþrif Katelyn Ohashi í fullkomu sambandi við skemmtilega tónlist var ómótstæðilega blanda.

Heimur Katelyn Ohashi hefur líka umturnast í leiðinni enda áhugi á henni gríðarlegur eftir að æfing hennar sló í gegn. Fjölmiðlar keppast um að fá Ohashi í viðtal og síminn hennar hefur ekki stoppað.

Katelyn Ohashi heillaði heiminn með gleði sinni og útgeislun. Hún dansaði sig inn í hjörtu okkar í bland við það að negla ótrúleg stökk og tilþrif sem sýna bæði kraft og liðleika. Það kemur því örugglega mörgum á óvart að Katelyn Ohashi þurfti að komast í gegnum mótlæti og depurð til að komast á þann stað sem hún er í dag.





Katelyn talaði um þessa depurð sína í viðtölum og segir meðal annars frá því að hún hafi í raun „gefist upp“ á leið sinni upp á fimleikatoppinn og valdi í stað þess að fara í UCLA fyrir að verða fjórum árum þar sem hún stundar nám ásamt því að æfa fimleika. Hún æfði áfram fimleika með skólanum en var ekki „atvinnumaður“ eins og margar af efnilegustu fimleikakonunum á hennar aldri. Hún stundar nú nám í kynjafræði við UCLA háskólann.

Þegar Katelyn var yngri þá sáu menn hana aftur á móti í sama flokki og Simone Biles og spáðu því að hún færi alla leið og keppti um Ólympíugull í framtíðinni. Margt breyttist þegar Katelyn glímdi við mjög erfið axlarmeiðsli og gleðin hvarf.

Í viðtölum sínum hefur Katelyn Ohashi talað um þessa erfiðu tíma sem og hvernig hún komst í gegnum líkamssmánun og aðra fordóma gagnvart vexti hennar. Ohashi er ekki alveg þessi týpíska tággranna fimleikakona því hún er vissulega með sinn rass og sín læri.

Katelyn Ohashi er ekki aðeins frábær fimleikakona því hún er líka hæfileikaríkt skáld. Hún er líka tilbúinn að deila sínum lærdómi af óskemmtilegri upplifun sinni í gegnum áhrifríkt ljóð.

Þegar Katelyn Ohashi mætti í vinsæla morgunþáttinn Good Morning America þá fór hún með eytt ljóða sinna. Það fjallar einmitt um að vera stolt af því sem þú ert og láta ekki ósanngjarna líkamssmánun annara stoppa sig eða brjóta sig niður.

Það má sjá Katelyn Ohashi fara með ljóðið sitt hér fyrir neðan.









Katelyn Ohashi er því ekki aðeins fyrirmynd sem frábær fimleikakona heldur einnig fyrir það hvernig hún hefur fundið gleðina á ný og komist í gegnum erfiða tíma þegar lítið gekk upp.

Með því að segja frá reynslu sinni í öllum þessum viðtölum hefur hún eflaust einnig hjálpað mörgum óöruggum stúlkum í sinni stöðu. Eða eins og hún segir í ljóði sín „Self-Hatred Goodbyes“ þar sem hún segist standa stolt í öllu sínu veldi sama hvað hver segir.  

 „I’ve been consumed with the thought that bigger is synonymous to less than,

    That only those people with the right, perfect bodies have the right to stand.

    But here today, I stand, with the love that penetrates deeper than any wedding band.

    Because I am my own size, and no words or judgmental stares will make me compromise.“




Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×