Enski boltinn

Messan: Þetta var virkilega stór sigur hjá Liverpool

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Klopp fagnar ógurlega um helgina.
Klopp fagnar ógurlega um helgina. vísir/getty
Jürgen Klopp, stjóri Liverpool, fagnaði sigrinum gegn Crystal Palace gríðarlega í leikslok enda þurftu hans menn að hafa vel fyrir hlutunum.

„Þetta var virkilega stórt. Það hefði verið áfall að tapa þessum leik. Liverpool var búið að fá á sig þrjú mörk á heimavelli fram að þessum leik,“ sagði Jóhannes Karl Guðjónsson en leikurinn fór 4-3 fyrir Liverpool.

„Þeir fengu á sig þrjú mörk í þessum leik og eiga ekkert sérstakan dag, fá á sig þrjú aulamörk en samt vinnst leikurinn. Klopp trúir því að hlutirnir seú að falla með þeim.“

Umræðuna um Liverpool má sjá hér að neðan.



Klippa: Messan: Stór sigur hjá Liverpool

Tengdar fréttir

Sjáðu sögulegt mark Gylfa og dramatíkina á Anfield

Það vantaði ekki mörkin í enska boltanum í gær. Leikur Liverpool og Crystal Palace sá sjö mörk eins og leikur Wolves og Leicester. Þá vann Arsenal tveggja marka sigur á Chelsea í stórleik umferðarinnar.

Orðspor Mo Salah í hættu?

Mohamed Salah verið frábær á einu og hálfu tímabili sínu með Liverpool en ný þykir sumum knattspyrnuspekingum hann farinn að tefla á tæpasta vað með orðspor sitt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×