Átjándi sigur Juventus kom gegn botnliðinu

Anton Ingi Leifsson skrifar
Auðvelt hjá Juventus í kvöld.
Auðvelt hjá Juventus í kvöld. vísir/getty
Juventus vann sinn átjánda sigur í ítölsku úrvalsdeildinni er liðið vann þægilegan 3-0 sigur á Chieivo á heimavelli í Tórínó í kvöld.

Það voru ekki liðnar nema þrettán mínútur er Douglas Costa skoraði fyrsta mark leiksins og Emre Can tvöfaldaði forystuna rétt fyrir hlé.

Staðan var 2-0 allt þangað til á 84. mínútu er varnarmaðurinn Daniele Rugani skoraði þriðja og síðasta mark leiksins. Öruggur 3-0 sigur meistaranna.

Juventus er á toppnum með 56 stig, níu stigum á undan Napoli sem er í öðru sætinu, en Chievo er á botninum með átta stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira