Viðskipti innlent

Auknar starfsheimildir Kviku í Bretlandi

Atli Ísleifsson skrifar
Gunnar Sigurðsson, framkvæmdastjóri Kviku í Bretlandi.
Gunnar Sigurðsson, framkvæmdastjóri Kviku í Bretlandi. Kvika
Breska fjármálaeftirlitið hefur veitt dótturfélagi Kviku banka hf., Kviku Securities Ltd., starfsleyfi sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kviku. Þar segir að starfsleyfið veiti Kviku færi á að veita viðskiptavinum sínum, innlendum sem erlendum, víðtækari fjármálaþjónustu en áður sem taki nú til sjóðastýringar sérhæfðra sjóða auk almennrar fjármálaráðgjafar í Bretlandi.

Haft er eftir Gunnari Sigurðssyni, framkvæmdastjóra Kviku í Bretlandi, að uppbygging starfsemi Kviku í Bretlandi gangi vel og verkefnastaðan hafi verið að styrkjast jafnt og þétt. „Við erum því mjög ánægð að fá auknar starfsheimildir sem bætir stöðu okkar til að halda áfram að bjóða viðskiptavinum Kviku upp á áhugaverða fjárfestingakosti í Bretlandi á komandi misserum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×