Erlent

Móðir og tvær dætur hennar fundust látnar á heimili sínu nærri Bolton

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Mæðgurnar bjuggu í þorpinu Little Lever skammt frá Bolton.
Mæðgurnar bjuggu í þorpinu Little Lever skammt frá Bolton. google
27 ára gömul kona og tvær dætur hennar, eins árs og þriggja ára, fundust síðdegis í gær látnar á heimili sínu í þorpinu Little Lever nærri borginni Bolton í norðurhluta Englands.

Lögreglan rannsakar nú málið en lögreglumenn fundu mæðgurnar eftir að tilkynning barst frá aðstandanda sem lýsti yfir áhyggjum af velferð móðurinnar.

Lögreglan hefur ekki staðfest nöfn mæðgnanna en í frétt Guardian er konan sögð heita Tiffany Stevens og dætur hennar Caisie og Darcie.

Nágranni mæðgnanna, Annmarie Crossland, segir að hún hafi heyrt bróður Stevens og fyrrverandi mann hennar öskrandi og æpandi í húsasundi á bak við húsið áður en nágranni hringdi á neyðarlínuna um klukkan hálffjögur síðdegis í gær.

Að sögn lögreglu rannsakar hún málið með „opnum huga“ varðandi það hvernig dauða mæðgnanna bar að.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×