Viðskipti innlent

Heimavellir selja 154 íbúðir á Ásbrú

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Um 3.000 íbúa byggð er á Ásbrú.
Um 3.000 íbúa byggð er á Ásbrú. Vísir/heiða
Leigufélagið Heimavellir hefur ákveðið að selja níu fjölbýlishús á Ásbrú sem tilheyra svokölluðu 900 hverfi. Húsin heyrðu undir dótturfélag Heimavalla, Heimavellir 900 ehf, en í tilkynningu til Kauphallarinnar  segir að í fjölbýlishúsunum séu alls 154 íbúðir, þar af 32 stúdíóíbúðir. Íbúðirnar eru að meðaltali 155 fermetrar að stærð en stúdíóíbúðirnar eru um 40 fermetrar hver. Tekjur ársins 2019 af íbúðunum eru áætlaðar 272 milljónir króna en ekkert er gefið upp um mögulegt söluverð.

Salan á fjölbýlishúsunum níu er sögð liður í endurskipulagningu eignasafns Heimavalla. Félagið segist hafa lagt áherslu á að „selja stakar eignir og einingar sem falla ekki að stefnu félagsins.“ Í fyrrnefndri tilkynningu kemur fram að Heimavellir hafi á árinu 2018 selt 210 íbúðir fyrir samtals 6,2 milljarða króna, þar af var eignasala á fjórða ársfjórðungi 2,9 milljarðar króna. „Heildareignasala félagsins á árunum 2018 til 2020 er ráðgerð um 17 milljarðar króna en á móti hyggst félagið bæta við sig nýjum hagkvæmum eignum.“

Eftir sölu fjölbýlishúsanna á Ásbrú munu Heimavellir áfram eiga og reka 583 íbúðir á Ásbrú og er meðalstærð þeirra 98 fermetrar. Nánar má fræðast um söluferlið á Heimavöllum 900 ehf með því að smella hér.

 


Tengdar fréttir

Leiguverð hafi ekki hækkað óeðlilega hjá Heimavöllum

Framkvæmdastjóri Heimavalla segir stefnt að því að selja um 400 eignir út úr félaginu og kaupa jafn margar, en hagkvæmari, í staðinn, þannig verði hægt að hækka leigutekjur. Hann hafnar því að leiguverð hjá félaginu hafi hækkað óeðlilega mikið síðustu misseri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×