Innlent

Óháðir og Miðflokksmenn háværir við kjör auka varaforseta

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Alþingi samþykkti síðan að kjósa Steinunni Þóru Árnadóttur, Vinstri grænum, og Harald Benediktsson Sjálfstæðismann til að vera tímabundið í forsætisnefnd.
Alþingi samþykkti síðan að kjósa Steinunni Þóru Árnadóttur, Vinstri grænum, og Harald Benediktsson Sjálfstæðismann til að vera tímabundið í forsætisnefnd. Vísir/Vilhelm
Miðflokksmenn og óháðir létu vel í sér heyra áður en Alþingi samþykkti kjör tveggja varaforseta. Hlutverk þeirra er að ljúka meðferð Klaustursmálsins í forsætisnefnd og vísa því eftir atvikum til siðanefndar þingsins. Forsætisnefnd þingsins tók fyrir jól til meðferðar beiðni átta þingmanna sem telja að framganga sex þingmanna á kránni Klaustri hafi farið gegn siðareglum þingsins. Forseti og varaforsetar þingsins lýstu sig vanhæfa til að taka á málinu. Því var farin sú leið að kjósa tvo varaforseta úr hópi þingmanna sem ekki höfðu tjáð sig um málið á opinberum vettvangi. Könnun á hæfi þeirra sem til greina komu var unnin af skrifstofu þingsins.

„Ef rétt reynist að þingmenn hafi verið rannsakaðir til að sjá hvort við séum hæf hljótum við að spyrja hver framkvæmdi hana, á hvaða forsendum, með stoð í hvaða lögum og hvað var rannsakað?“ spurði Jón Þór Þorvaldsson, varaþingmaður Miðflokks í stað Bergþórs Ólasonar.

„Það hefur verið furðulegt að sjá hæstvirtan forseta, eftir að hann hefur lýst sig vanhæfan, koma fram í fjölmiðlum og segja að kjósa beri varaforseta sem síðan vísi málinu til siðanefndar. Vanhæfi forsetinn er að segja nefndinni hvað hún á að gera,“ sagði hinn óháði Karl Gauti Hjaltason. Aðeins tóku til máls sitjandi þingmenn Miðflokksins og tveir fyrrverandi þingmenn Flokks fólksins sem nú eru utan þingflokka.

Alþingi samþykkti síðan að kjósa Steinunni Þóru Árnadóttur, Vinstri grænum, og Harald Benediktsson Sjálfstæðismann til að vera tímabundið í forsætisnefnd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×