Sport

Hilmar Snær sekúndubrotum frá því að komast á verðlaunapall á HM

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hilmar Snær Örvarsson með þjálfara sínum Þórði Georg Hjörleifssyni.
Hilmar Snær Örvarsson með þjálfara sínum Þórði Georg Hjörleifssyni. Mynd/ifsport.is
Skíðamaðurinn Hilmar Snær Örvarsson úr Skíðadeild Víkings náði í dag fjórða sæti í svigi á heimsmeistaramótinu í alpagreinum en hann var aðeins sekúndubrotum frá því að komast á verðlaunapall.

Hilmar hefur nú lokið keppni á HM sem fram fer í Slóveníu en hann hafnaði í 20. sæti í stórsvigi og 4. sæti í svigi eftir tvær stórglæsilegar ferðir í dag.

Hilmar var fimmti eftir fyrri ferðina en vann sig upp um eitt sæti í seinni ferðinni en þar bætti hann tíma sinn um 1,3 sekúndur frá fyrri ferð.

Frakkinn Arthur Bauchet vann gullið, Svisslendingurinn Thomas Pfyl landaði silfri og Ástralinn Mitchell Bourley varð þriðji aðeins 28 sekúndubrotum á undan Hilmari.

Hilmar hóf ferðina á heimsbikarmóti í Zagreb í Króatíu þar sem hann vann til gullverðlauna í svigi og varð þar með fyrstur Íslendinga til að vinna sigur á heimsbikarmóti í sögunni.

Á HM náði hann besta árangri sem íþróttamaður úr röðum fatlaðra á Íslandi hefur náð á heimsmeistaramóti í alpagreinum.

Mynd/ifsport.is



Fleiri fréttir

Sjá meira


×