Viðskipti innlent

Þórdís Anna frá Icelandair til Kviku

Atli Ísleifsson skrifar
Þórdís Anna Oddsdóttir.
Þórdís Anna Oddsdóttir. Kvika banki
Þórdís Anna Oddsdóttir hefur verið ráðin til starfa í fyrirtækjaráðgjöf Kviku banka og mun hún hefja þar störf á næstu vikum.

Í tilkynningu frá Kviku segir að síðastliðin sex ár hafi Þórdís starfað hjá Icelandair þar sem hún hefur gegnt ýmsum stjórnendastöðum, síðast sem forstöðumaður tekjustýringar.

„Fyrir það starfaði Þórdís við rannsóknar- og ráðgjafastörf hjá Statoil A/S í Danmörku og sinnti einnig rannsóknarvinnu og kennslu í rekstrarverkfræði hjá Denmark Techniske Universitet. Á árunum 2007–2009 starfaði Þórdís sem sérfræðingur í áhættustýringu hjá Straumi Fjárfestingarbanka. Þórdís situr í dag í stjórn Bresk-íslenska Viðskiptaráðsins og er aðjúnkt við Iðnaðarverkfræðideild Háskóla Íslands.

Þórdís er með BS gráðu í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands og MS gráðu frá Georgia Institute of Technology í Bandaríkjunum. Auk þess hefur hún lokið prófi í verðbréfaviðskiptum,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×