Handbolti

Hannes Jón tekur við af Patreki

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hannes Jón er að taka við spennandi starfi.
Hannes Jón er að taka við spennandi starfi.
Handknattleiksdeild Selfoss tilkynnti í morgun að félagið væri búið að ráða Hannes Jón Jónsson sem næsta þjálfara karlaliðs félagsins.

Hannes Jón skrifaði undir þriggja ára samning við Selfyssinga. Hann tekur við liðinu af Patreki Jóhannessyni en hann er að taka við danska liðinu Skjern.

Auk þess að þjálfa meistaraflokk mun Hannes verða framkvæmdastjóri handknattleiksakademíunnar sem handknattleiksdeildin rekur ásamt Fjölbrautaskóla Suðurlands.

Hannes Jón er uppalinn hjá Val en lék m.a. með Selfoss á árunum 2001-2003. Hann fór út í atvinnumennsku og lék með liðunum Ajax København og Fredericia í Danmörku, Elverum í Noregi og Hannover-Burgdorf og THSV Eisenach í Þýskalandi. Auk þess á hann 36 leiki að baki með íslenska landsliðinu. Frá árinu 2015 hefur hann verið þjálfari West Wien í Austurríki en var rekinn frá félaginu á dögunum.

Við undirritun samnings sagði Hannes Jón að starfið á Selfossi væri gríðarlega spennandi og mikil áskorun sem hann hlakkar til að takast á við.

„Það er greinilegt að þar hefur margt mjög gott verið gert síðastliðin ár og hugmyndafræðin í uppbyggingarstarfinu er að skila leikmönnum í fremstu röð. Félagið leggur metnað í að halda áfram að gera vel, það verður gaman að fá að taka þátt í því,“ segir Hannes í fréttatilkynningu Selfyssinga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×