Sport

Conor til í að dansa við Kúrekann

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Conor ætlar að þykkja veskið enn frekar á árinu.
Conor ætlar að þykkja veskið enn frekar á árinu. vísir/getty
Svo virðist vera sem Írinn Conor McGregor sé sjóðheitur fyrir því að berjast við Donald „Cowboy“ Cerrone.

Cerrone kallaði eftir bardaga við Írann eftir að hann barðist um daginn og Conor tók vel í þá bón Kúrekans.





Kúrekinn hefur haldið áfram að hamra járnið og sagðist vera meira en til í að drekka viskíið hans Conors á blaðamannafundum fyrir bardagann á meðan Conor kæmi með Budweiser sem er styrktaraðili Cerrone.

Aftur tók Conor vel í orð Bandaríkjamannsins og ljóst að UFC þarf að fara að skoða það að koma þeim í búrið fljótlega.





Hvort þetta sé nákvæmlega bardaginn sem UFC vill sjá næst hjá Conor skal ósagt látið en hann myndi gleðja marga enda báðir bardagakappar með eindæmum vinsælir.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×