Erlent

Myrti foreldra sína, þrjá aðra og leikur lausum hala

Samúel Karl Ólason skrifar
Dakota Theriot er grunaður um að hafa myrt föður sinn, stjúpmóður og þrjá aðra í tveimur bæjum í Louisiana.
Dakota Theriot er grunaður um að hafa myrt föður sinn, stjúpmóður og þrjá aðra í tveimur bæjum í Louisiana. Vísir/AP
Lögreglan í Louisiana í Bandaríkjunum leitar nú að hinum 21 árs gamla Dakota Theriot sem sakaður er um að hafa skotið fimm manns til bana í dag. Hann er sagður hafa myrt báða foreldra sína og þrjá meðlimi annarrar fjölskyldu í Gonzales og Walker sem eru bæir nærri New Orleans.

Theriot er talinn vera vopnaður og hættulegur.

Fógetinn í Ascension (Gonzales er í umdæmi hans) sagði frá því á Facebook að Theriot væri leitað fyrr í kvöld og að hann hefði myrt föður sinn og fósturmóður sína. Seinna kom í ljós að hann er einnig grunaður um að hafa myrt þau Billy, Tanner og Summer Ernest í Walker, sem er í umdæmi fógetans í Livingston.

Bobby Webre, fógeti Ascension, segir foreldra Theriot hafa nýverið rekið hann af heimili þeirra og sagt honum að snúa ekki aftur. Þá þekkti hann einnig einn af hinum þremur sem hann er grunaður um að hafa myrt.

Bobby Webre, fógeti Ascension sendi frá sér yfirlýsingu þar sem hann sagði fólki að nálgast Dakota Theriot ekki ef það sæi hann.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×