Körfubolti

Melo vill bara vera hamingjusamur

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Melo fékk alvöru móttökur í MSG.
Melo fékk alvöru móttökur í MSG. vísir/getty
Carmelo Anthony var mættur aftur í Madison Square Garden í gær en þó ekki til þess að keppa. Hann var kominn til þess að horfa á Dwyane Wade.

Anthony var auðvitað lengi leikmaður NY Knicks en er nú á mála hjá Chicago Bulls. Bulls ætlar aftur á móti að losa sig við leikmanninn áður en glugginn lokar 7. febrúar.





„Á þessum tímapunkti á ferlinum þá vil ég bara vera hamingjusamur. Ég er á góðum stað andlega og ég mun taka því tilboði sem gerir mig hamingjusaman,“ sagði Melo við blaðamenn í MSG.

Það var staðið upp fyrir Melo er hann var sýndur á stóra skjánum í MSG í gær. Honum þótti augljóslega vænt um það.

„Stuðningsmenn Knicks hafa alltaf verið yndislegir við mig og þetta er mitt heimili. Það er einstök orka hérna,“ sagði Melo en hann spilaði með Knicks í sjö ár.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×