Innlent

Alþingi ætlað að móta stefnu um veggjöld fyrir föstudag

Kristján Már Unnarsson skrifar
Jón Gunnarsson hefur stýrt stefnumörkuninni sem starfandi formaður umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis.
Jón Gunnarsson hefur stýrt stefnumörkuninni sem starfandi formaður umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis. Mynd/Vísir.
Alþingi er ætlað að móta stefnu sína um veggjöld á næstu þremur þingdögum, miðað við samkomulag um að samgönguáætlun verði kláruð fyrir 1. febrúar. Afgreiða á málið úr þingnefnd í fyrramálið. Vegagerðin segir að því lengur sem dragist að samþykkja samgönguáætlun, því erfiðara verði að afla hagstæðra tilboða. Fjallað var um málið í fréttum Stöðvar 2. 

Varaformaður umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis, Jón Gunnarsson, sem haft hefur forystu um upptöku veggjalda í þinginu, segir stefnt að því að samgönguáætlun verði afgreidd úr þingnefndinni í fyrramálið með stefnumörkun um veggjöld. Samgönguráðherra muni síðan flytja sérstakt frumvarp um veggjöldin á vordögum. Alþingi þurfi svo að taka samgönguáætlun upp að nýju í haust sem taki mið af veggjöldum.

Hjá Vegagerðinni höfðu menn vonast til að samgönguáætlun kláraðist fyrir jól. 

„Það má segjast að fyrir okkur sem stöndum í framkvæmdum að það sé heilmikil áskorun að gera áætlanir þegar samgöngutillögur liggja fyrir Alþingi og samþykktir eru að dragast svolítið á langinn,“ segir Óskar Örn Jónsson, forstöðumaður framkvæmdadeildar Vegagerðarinnar.

Óskar Örn Jónsson, forstöðumaður framkvæmdadeildar Vegagerðarinnar.Stöð 2/Baldur Hrafnkell Jónsson.
Veggjöldin hleyptu hins vegar þingstörfum í loft upp á lokadögum fyrir jól og samgönguáætlun strandaði, Vegagerðarmönnum til vonbrigða. 

„Við höfum ekkert farið leynt með það að við myndum vilja sjá aðeins lengra fram í tímann til að skipuleggja okkar vinnu,“ segir Óskar. 

Samkomulag náðist í þinginu um að klára samgönguáætlun fyrir 1. febrúar, sem er á föstudag. Þangað til eru aðeins þrír fundardagar. Núna er það spurningin hvort veggjöldin tefji málið ennþá frekar og þar með útboð Vegagerðarinnar. 

„Við höfum rekið okkur á það að þegar við bjóðum út þegar allir verktakar hafa ráðstafað sér yfir sumartímann þá fáum við fá tilboð og há verð. Þannig að það er mikið í mun fyrir okkur að sjá fram í tímann og bjóða út verk núna bara á þessum mánuðum,“ segir forstöðumaður framkvæmdadeildar Vegagerðarinnar. 

Hér má sjá frétt Stöðvar 2.


Tengdar fréttir

Sveitarstjórnarmenn báðu alþingismenn um veggjöld

Veggjöld! Veggjöld! Þetta voru skilaboðin sem alþingismenn fengu frá sveitarstjórnarmönnum af landsbyggðinni á þingnefndarfundi í dag, en þeir vilja meira fjármagn í jarðgöng og til að malbika sveitavegi.

Einn af þremur styður veggjöld

Samgönguráðherra segir merkilegt hversu margir séu hlynntir tillögum um veggjöld. Meirihluti landsmanna, rúm 56 prósent, er andvígur veggjöldum.

Vill selja ríkiseignir fremur en að þyngja álögur á landsmenn

Formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, sjálfstæðismaðurinn Óli Björn Kárason, segir ríkið geta kostað vegagerð með því að selja eignir og kveðst andvígur því að álögur verði þyngdar á landsmenn með nýrri tegund skattheimtu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×