Körfubolti

Haukur Helgi öflugur í sigri

Anton Ingi Leifsson skrifar
Haukur Helgi í leik með Nanterre fyrr á leiktíðinni.
Haukur Helgi í leik með Nanterre fyrr á leiktíðinni. vísir/getty
Haukur Helgi Pálsson átti fínan leik fyrir Nanterre sem vann góðan sigur á Chalons-Reims, 102-77, á útivelli í frönsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Jafnræði var með liðunum í fyrsta leikhlutanum en í öðrum leikhlutanum tóku gestirnir frá Nanterre forystuna og leiddu 47-35.

Nanterre hélt tröllatökum á leiknum í síðari hálfleik og hleypti heimamönnum aldrei inn í leikinn. Munurinn varð svo að endingu 25 stig, 102-77.

Haukur Helgi átti flottan leik í kvöld og skoraði ellefu stig en hann tók einnig þrjú fráköst. Hann spilaði í rúmlegar tuttugu mínútur en Nanterre í öðru og þriðja sæti deildarinnar ásamt Élan Béarnais.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×