Handbolti

Fékk vondar fréttir frá pabba æskuvinar síns sem er landsliðsþjálfarinn

Tómas Þór Þórðarson í München skrifar
Bjarki Már Elísson er klár í slaginn í München.
Bjarki Már Elísson er klár í slaginn í München. vísir/epa
Bjarki Már Elísson, hornamaður íslenska landsliðsins í handbolta, er líklegur til að byrja leikinn á móti Króatíu á morgun þegar að strákarnir okkar hefja leik á HM 2019.

Þannig var aldeilis ekki staðan 20. desember þegar að Guðmundur Guðmundsson tilkynnti 20 manna æfingahópinn því Bjarki var ekki valinn í hann. Stefán Rafn Sigurmannsson var tekinn fram yfir Bjarka á eftir Guðjóni Val Sigurðssyni.

HM-draumurinn var þar úti fyrir Bjarka sem kom síðan inn bakdyramegin vegna meiðsla Guðjóns og veikinda Stefáns Rafns og mun þessi frábæri hornamaður leika listir sínar á stóra sviðinu í München næstu daga

Ísland er lítið land. Mjög lítið, og allir þekkja alla. Smæð landsins sést vel í þeirri staðreynd að Bjarki Már og Hermann Guðmundsson, sonur Guðmundar, eru æskuvinir og voru mættir á grínsýningu Ara Eldjárns í Háskólabíó saman átta dögum eftir að Guðmundur gerði út um HM-draum Bjarka. Þeir láta slíkt að sjálfsögðu ekki hafa áhrif á vináttuna.

Klippa: Bjarki Már - Verður að taka það jákvæða úr þessu


„Það er nú bara eins og það er. Við höfum alltaf talað opinskátt um þetta og gerum bara grín að þessu. Við tölum oft um að ef ég er ekki valinn þá er ég bara í fríi og þá getum við slakað á saman. Maður verður bara að taka það jákvæða úr þessu,“ segir Bjarki Már léttur um vinskapinn við son þjálfarans.

Bjarki Már fagnar að sjálfsögðu tækifærinu að spila á HM en viðurkennir að þessi atvinnu- og landsliðsheimur er skrítinn; að vera allt í einu mættur á HM eftir að hafa fengið upphaflega þær fréttir að hann væri ekki að fara.

„Þetta er skrítið, en eins og Gummi talaði um við mig þá hafði þetta ekkert með mína frammistöðu að gera. Það er ekki eins og og það sé verið að gera mér greiða með því að velja mig. Þetta snýst um að maður sé nógu góður og mér finnst ég vera nógu góður. Nú er bara að nýta þetta tækifæri sem maður fær og gera eitthvað af viti,“ segir Bjarki Már Elísson.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×