Innlent

Magnús Már nýr framkvæmdastjóri BSRB

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Magnús Már Guðmundsson.
Magnús Már Guðmundsson. Mynd/BSRB
Magnús Már Guðmundsson hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri BSRB. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sambandinu. Magnús tekur við starfinu af Helgu Jónsdóttur sem lét af störfum um áramótin.

Magnús hefur verið borgarfulltrúi og varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar frá árinu 2014 en mun óska eftir leyfi frá störfum á fundi borgarstjórnar í næstu viku. Hann er með B.A.-próf í sagnfræði frá Háskóla Íslands með stjórnmálafræði sem aukagrein. Hann er með kennsluréttindi sem grunn- og framhaldsskólakennari og hóf nýlega meistaranám í opinberri stjórnsýslu.

Þá starfaði Magnús með fötluðum börnum og ungmennum hjá Íþrótta- og tómstundasviði Reykjavíkurborgar með námi á árunum 2002 til 2008. Hann var fréttamaður á fréttastofu Vísis og Bylgjunnar að námi loknu en hóf störf sem kennari í Menntaskólanum í Kópavogi árið 2011. Hann var kjörinn varaborgarfulltrúi í Reykjavíkurborg árið 2014, varð tímabundið borgarfulltrúi árið 2016, en hefur verið varaborgarfulltrúi aftur frá árinu 2017.

Haft er eftir Magnúsi í tilkynningu að hann hlakki til að starfa innan bandalagsins og í aðildarfélögum þess. Þá segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB að það sé mikill fengur fyrir félagið að fá Magnús til liðs við það.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×