Innlent

Segir Artur hafa kýlt og sparkað í sig þar sem hann lá

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Artur Pawel Wisocki ásamt verjanda sínum í dómsal í morgun.
Artur Pawel Wisocki ásamt verjanda sínum í dómsal í morgun. Visir/Vilhelm
Dyravörður á Shooters sem er lamaður fyrir neðan háls eftir líkamsárás á Shooters þann 26. ágúst síðastliðinn segir að ákærði Artur Pawel Wisocki hafi kýlt og sparkað í sig eftir að hafa verið hrint niður tröppur á næturklúbbnum. Artur neitar þessu en hann segist hafa gengið í burtu eftir að dyravörðurinn hafi dottið í gólfið.

Skýrslutaka var yfir dyraverðinum á endurhæfingardeild Landspítalans í hádeginu í dag. Blaðamenn voru ekki viðstaddir. Í máli saksóknara við aðalmeðferðina eftir hádegi í dag kom fram að dyravörðurinn lýsti því þannig að Artur hefði kýlt sig og sparkað í sig eftir fallið.

Atburðarásin hefur verið rakin í fyrri fréttum Vísis í aðalmeðferðinni í dag. Fyrir liggur að ákærði Artur kýldi dyravörðinn og elti hann inn á staðinn. Það sést á upptökum og í framhaldinu eru þeir ósammála hvað gerðist en þessi hluti staðarins er ekki vaktaður með öryggisupptökuvél.

Artur segir þá hafa fallið aftarlega á staðnum og dyravörðurinn dottið niður um tröppur. Dyravörðurinn segir Artur hafa kýlt sig og sparkað í liggjandi.

Telur töluvert afl þurfa til

Læknir, starfandi sérfræðingur á bráðamóttöku Landspítalans sem tók á móti alvarlega slösuðum dyraverðinum umrædda nótt, telur að töluvert mikinn kraft þurfi til að brjóta hálshryggjarlið. Brotið varð til þess að hryggjarliðurinn gekk inn í mænuna og olli lömuninni.

Sérfræðingurinn lýsti því að hann hefði tekið á móti hinum slasaða sem hefði verið í miklu uppnámi og hræddur. Við taugaskoðun kom í ljós að hann hreyfði ekki útlimi og kvartaði ekki undan sársauka við prófun. Í kjölfarið hafi verið haft samband við skurðlækni og hann lagður inn á gjörgæslu.

Saksóknari spurði lækninn hversu mikinn kraft þyrfti til að valda slíku broti á hálshryggjarlið. 

„Það þarf nú allnokkurn kraft en það fer eftir því hvernig einstakling við erum að tala um,“ sagði læknirinn. Saksóknari benti á að brotaþoli væri sterkbyggður einstaklingur.

„Svo fer þetta líka eftir vinklinum, hvernig höggið lendir á.“ sagði læknirinn. Hann ítrekaði að nokkuð afl þyrfti til að brjóta liðinn sem væri sá fimmti, rétt fyrir ofan hálsrótina.

 


Tengdar fréttir

Neitar að planið hafi verið að ráðast á dyraverðina

Dawid Kornacki, 32 ára Pólverji, sem er ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás aðfaranótt 26. ágúst fyrir utan skemmtistaðinn Shooters í Austurstræti segist sjá mikið eftir því sem gerðist umrætt kvöld.

„Heimskulegasta sem ég hef gert á ævinni“

Artur Pawel Wisocki, 29 ára karlmaður sem ákærður er fyrir stórfellda líkamsárás fyrir utan næturklúbbinn Shooters aðfaranótt 26. ágúst síðastliðinn, segir að dyraverðir og starfsfólk á Shooters hafi komið illa fram við sig og aðra Pólverja á staðnum umrætt kvöld.

„Geturðu hjálpað mér því ég er að deyja“

Dyravörður sem varð fyrir árás fjögurra manna fyrir utan Shooters aðfaranótt 26. ágúst segir það hafa verið mikið áfall að sjá kollega sinn liggjandi á gólfinu inni á staðnum eftir slagsmál við hóp manna sem hafði flestum verið vísað af staðnum um hálftíma fyrr.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×