Handbolti

Umfjöllun um súrt tap gegn Króatíu: Slæmur lokakafli en ekki slæmi kaflinn

Tómas Þór Þórðarson í München skrifar
Guðmundur Guðmundsson var svekktur í leikslok.
Guðmundur Guðmundsson var svekktur í leikslok. vísir/epa
„Ohhh!“ hvæsti sársvekktur Arnór Þór Gunnarsson, hornamaður íslenska landsliðsins, rétt áður en Vísir tók hann tali eftir tapið súra gegn Króatíu, 31-27, í fyrsta leik liðanna á HM 2019. Það er alveg hægt að taka undir með Arnóri: „Ohhh!“

Þetta var svekkjandi. Mjög svekkjandi. Góðar 50 mínútur í handbolta geta skilað þér sigri á móti ansi mörgum andstæðingum en Króatía er ekki einn þeirra. Vont skotval, tapaðir boltar og brottrekstrar á móti liði eins og Króatíu er bara mark í bakið. Það er alveg eins hægt að kasta boltanum í eigið mark.

Úrslitin voru ekki síður svekkjandi eftir handboltann sem strákarnir buðu upp á lengst af í leiknum. Karakterinn var mikill og gæðin ekki minni þegar að liðið breytti stöðunni úr 16-20 í 24-22. Í staðinn fyrir að sökkva ofan í holuna sem þeir voru búnir að grafa klifruðu þeir upp í sólarljósið.

En, þú færð því miður ekki stig fyrir að reyna og gera bara vel. Þú færð vissulega gott veganesti inn í næstu leiki, mögulega sjálfstraust og innlögn á reynslubankann en það skilar því miður ekki stigum.

Aron Pálmarsson fékk tíu í sóknareinkunn hjá HB Statz.vísir/epa

Aron skaut - og skoraði!

Nú verða sagðar gamlar fréttir og nýjar: Aron Pálmarsson er ótrúlega góður í handbolta. Hann var beðinn um að fara í gamla hlutverkið sitt að skjóta á markið og skora og sá svaraði kallinu.

Sjö mörk í tíu skotum, níu sköpuð færi, sjö stoðsendingar og aðeins einn tapaður bolti. Sóknareinkunn á HB Statz upp á 10. Aron lét sitt ekki eftir liggja og skoraði nánast að vild, oft úr erfiðum færum og átti sjö af tíu stoðsendingum liðsins.

Annar reynslubolti, Arnór Þór Gunnarsson, var sömuleiðis traustur í hægra horninu og nýtti öll sín færi og bæði vítaköstin. Arnór var líka allan tímann að rífa sína menn áfram og þá er hann með svarta beltið í því að fá íslenskt fólk í stúkunni til að standa á fætur og taka þátt.

Sóknarleikurinn var ansi vel smurður fram að umræddum lokakafla. Það er ekkert grín að brjóta á bak aftur þessa króatísku vörn en íslenska liðið náði sér í fín færi og hefði leikandi skorað 30 mörk ef ekki hefði allt farið í hundana í lokin.

Elvar Örn Jónsson var frábær í sínum fyrsta leik á stórmóti.vísir/tom

Negla hjá nýliðanum

Elvar Örn Jónsson var að spila sinn fyrsta leik á HM og það á móti einu besta liði heims. Fyrstu 50 mínútur leiksins var ekki að sjá að þessi 21 árs gamli Selfyssingur væri að þreyta frumraun sína á stóra sviðinu. Hann mætti bara beint úr Iðu, nýbúinn að kyngja síðasta bragðarefnum úr Huppu, og var frábær.

Elvar var hvergi banginn og skoraði í fyrstu tveimur skotunum sínum. Hann spilaði stórt hlutverk í sókninni þar sem að hann endaði reyndar undir 50 prósent í skotnýtingu en gaf þrjár stoðsendingar til viðbótar við mörkin fimm.

Áður en nýliðinn er hengdur fyrir það slæma sem að hann gerði undir lokin má einnig benda á að hann var með flestar löglegar stöðvanir í varnarleiknum ásamt Ólafi Gústafssyni eða sjö talsins og spilaði einnig hægra megin í sókinni þegar að Ómar Ingi Magnússon þurfti að setjast á bekkinn og hugsa sinn gang eftir slakan leik framan af.

Einnig verður að hrósa Ágústi Elí Björgvinssyni fyrir hans innkomu. Markvörðurinn er að spila á sínu fyrsta heimsmeistaramóti en hann fékk nokkrar mínútur á EM í fyrra. Þökk sé honum komst íslenska liðið í forystu í seinni hálfleik og er gott að vita að hann sé klár fyrir aftan Björgvin.

Það er ekkert grín að ráða við króatísku sóknarmennina.vísir/epa

Ýmislegt eftir ópússað

Það góða sem íslenska liðið bauð upp á í dag var virkilega gott. Sóknarleikurinn var hraður, beinskeyttur og flestar sendingar höfðu tilgang. Sjaldan lenti liðið í einhverri of mikilli vitleysu og flestar sóknir enduðu með skoti.

Varnarleikurinn er enn að slípast en það þarf ekki nema að líta á tölfræðina til að sjá að þetta er allt að koma. Þetta eru ekkert nein íslensk gleraugu heldur ískaldar staðreyndir.

Ísland var með 24 stöðvanir á móti 15 í leiknum og hélt stórskyttum Króatíu í 36 prósent skotum fyrir utan teig. Vissulega fengum við á okkur fleiri víti enda erfitt að eltast við þessa króatísku dreka.

Varnarleikurinn átti skilið betri markvörslu en 24,4 prósent markvarsla skilar þér ekki sigri á móti svona sterku liði á stórmóti. Markverðirnir eru enn að ná takti með vörninni en það þarf að fara að slá þennan takt fljótlega. Helst á sunnudaginn á móti Spáni því þar bíður annað skrímsli. Evrópumeistararnir.

Lokakaflinn í dag var bara slæmur kafli en ekki hinn víðfrægi slæmi kafli. Mínútunum sem að íslenska liðið spilar vel fjölgar, leikirnir eru að verða heilsteyptari, varnarleikurinn betri og og liðið þéttara. Það mátti litlu muna í dag en nógu miklu til að vinna lið eins og Króatíu.


Tengdar fréttir

Elvar: Getum unnið hvaða lið sem er

Elvar Örn Jónsson var frábær í sínum fyrsta leik á stórmóti með íslenska karlalandsliðinu í handbolta. Ísenska liðið tapaði með fjórum mörkum fyrir Króatíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×