Handbolti

Einkunnir strákanna okkar í kvöld: Aron í algjörum heimsklassa

Aron Pálmarsson.
Aron Pálmarsson. Vísir/EPA
Íslenska handboltalandsliðið tapaði með fjögurra marka mun, 27-31, í fyrsta leik sínum á heimsmeistaramótinu í Þýskalandi og Danmörku.

Íslenska liðið átti mjög góðan leik í kvöld og sýndi mikinn karakter með að vinna sig aftur inn í leikinn en Króatar refsuðu fyrir hver mistök með auðveldum mörkum.

Íslensku strákarnir náðu að vinna upp fjögurra marka mun í seinni hálfeik og komast tveimur mörkum yfir en Króatar voru öflugir á endasprettinum og tryggðu sér sigurinn með 9-3 endaspretti.  

Líkt og áður þá gefur íþróttadeild Vísis og Stöðvar tvö leikmönnum og þjálfaranum einkunnir fyrir frammistöðu sína.

Aron Pálmarsson var besti leikmaður íslenska liðsins í kvöld að mati okkar en hann fær fullt hús enda í algjörum heimsklassa. Það var heldur enginn nýliðabragur á Elvari Erni Jónssyni sem var að spila sinn fyrsta leik á stórmóti.

Leikmenn og þjálfarar fá einkunn á bilinu 1-6 með umsögn, en neðst í fréttinni má sjá hvað hver einkunn þýðir.

Einkunnir Íslands gegn Króatíu:

- Byrjunarlið Íslands í leiknum -

Björgvin Páll Gústavsson - 2

Fann engan takt eins og í síðustu leikjum. Ekki nógu góð frammistaða hjá honum. Þarf að vakna.

Bjarki Már Elísson - 4

Kom inn í liðið við erfiðar aðstæður, stóð fyrir sínu og gott betur. Seinni hálfleikurinn hjá honum lofar góðu fyrir framhaldið.

Aron Pálmarsson - 6

Besti leikmaður íslenska liðsins. Mataði félaga sína með frábærum sendingum og skoraði glæsileg mörk. Var á pari við bestu leikmenn heims í liði Króatíu. Var í algjörum heimsklassa.

Elvar Örn Jónsson - 5

Lék frábærlega í sínum fyrsta leik á stóra sviðinu á heimsmeistaramóti. Mjög öflugur í sóknarleiknum en varnarleikinn þarf hann að bæta.

Ómar Ingi Magnússon - 4

Spilaði vel fyrir liðið og samherja sína. Skotógn var afar lítil hjá honum enda við ramman reip að draga. Góður kafla í seinni hálfleik lofar góðu.

Arnór Þór Gunnarsson - 3

Kláraði það sem að honum var rétt. Bætti að öðru leiti litlu við leik liðsins. Góður leikmaður sem þarf hinsvegar að sýna meira.

Arnar Freyr Arnarsson - 5

Lék líklega sinn besta landsleik. Það mæddi gríðarlega mikið á honum varnarlega og þar stóð hann sig eins og hetja. Þarf aftur á móti að nýta færin sín betur.

Ólafur Gústafsson - 4

Var í rauninni í erfiðu hlutverki varnarlega en verður ekki sakaður um að hafa ekki lagt sig fram. Eins og staðan er í dag þá eigum við ekki betri mann í hans stöðu.

- Menn sem komu inn af bekknum í leiknum -

Ágúst Elí Björgvinsson - 4

Kom óvænt inn í liðið og skilaði sínu í Noregi. Hefði að ósekju mátt koma fyrr inn í leikinn í dag. Stimplaði sig inn með ágætri frammistöðu í seinni hálfleik.

Ólafur Guðmundsson - 4

Hefur oft gert betur sóknarlega en hann hefur vaxið gríðarlega í sínum leik og þá ekki síst varnarlega. Er afar mikilvægur liðinu enda enginn sem fyllir hans skarð.

Ýmir Örn Gíslason - 3

Var að þreyta frumraun sína á stóra sviðinu og spilaði í tæpar tíu mínútur. Skilaði sínu þann tíma sem hann lék. Framtíðarvarnarmaður en skortir reynslu sem kemur.

Sigvaldi Guðjónsson - spilaði ekkert

Teitur Örn Einarsson - spilaði ekkert

Daníel Þór Ingason - spilaði ekkert

Gísli Þorgeir Kristjánsson - spilaði ekkert

Stefán Rafn Sigurmannsson - spilaði ekkert



Þjálfarinn Guðmundur Guðmundsson - 5

Það kemur enginn að tómum kofanum hjá Guðmundi. Sóknarleikurinn var frábærlega útfærður á móti framliggjandi vörn Króata. Sóknarleikurinn er eitt helsta vopn Guðmundar. Hann fær hinsvegar mínus í kladdann að vera aðeins með eitt varnarafbrigði en það skírist líklega að stuttum tíma sem hann hefur verið með liðið.

Útskýring á einkunnum:

6 - Heimsklassa frammistaða

5 - Frábær frammistaða

4 - Góð frammistaða

3 - Sæmileg frammistaða - skilaði sínu

2 - Ekki nógu góð frammistaða

1 - Slakur leikur




Fleiri fréttir

Sjá meira


×