Enski boltinn

De Gea: Þetta er Manchester United

Anton Ingi Leifsson skrifar
De Gea fagnar í leikslok.
De Gea fagnar í leikslok. visir/getty
David de Gea, markvörður Manchester United, var ótrúlegur er United vann 1-0 sigur á Tottenham í stórleik helgarinnar í enska boltanum.

De Gea gjörsamlega lokaði markinu gegn frábærum sóknarmönnum en hann endaði á því að verja ellefu skot í leiknum í dag.

„Við vorum að vinna leik gegn toppliði. Við stjórnuðum leiknum í fyrri hálfleik en í síðari hálfleik fengu þeir færi,“ sagði de Gea í leikslok.

„Mér leið mjög vel eftir fyrstu tvær markvörslurnar. Þetta var frábær leikur,“ en hann var aðspurður hvaða makvarsla í leiknum hafi verið hans besta:

„Ég man ekki eftir nokkrum af þeim svo ég get ekki valið,“ en hann er mjög svo ánægður með komu Norðmannsins, Ole Gunnar Solskjær, inn í liðið.

„Stjórinn kom inn með gleði. Leikmennirnir eru að spila vel og liðið er mjög svo sterkt. Þetta er Manchester United,“ sagði Spánverjinn.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×