Sport

Meistararnir úr leik þrátt fyrir draumabyrjun: Brady og Brees fóru áfram með sín lið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tom Brady er einu skrefi nær sjötta meistaratitlinum.
Tom Brady er einu skrefi nær sjötta meistaratitlinum. Getty/Maddie Meyer
New Orleans Saints og New England Patriots tryggðu sér í nótt sæti í úrslitum deildanna í úrslitakeppni NFL-deildarinnar en þau gerðu það vissulega með mjög ólíkum hætti.

New England Patriots rúllaði upp liði Los Angeles Charges 41-28 en New Orleans Saints þurfti að koma til baka á móti meisturum Philadelphia Eagles eftir martraðarbyrjun og vann á endanum 20-14.

Nú eru bara fjögur lið eftir í úrslitakeppni NFL-deildarinnar en lið Kansas City Chiefs og Los Angeles Rams komust áfram á laugardaginn.

Kansas City Chiefs og New England Patriots mætast í úrslitaleik Ameríkudeildarinnar en í úrslitaleik Þjóðardeildarinnar mætast New Orleans Saints og Los Angeles Rams.





Sigur New England Patriots var eiginlega aldrei í hættu eftir ótrúlegan fyrri hálfleik þar sem Tom Brady og félagar skoruðu snertimörk í fimm af fyrstu sex sóknum sínum og voru komnir með 35-7 forystu í hálfleik.

Patriots komst með þessum sigri í úrslitaleik Ameríkudeildarinnar áttunda árið í röð sem er magnað afrek. Leikstjórnandinn Tom Brady og þjálfarinn Bill Belichick eru þar með að fara í þrettánda úrslitaleikinn í Ameríkudeildinni en þeir eru að elta sjötta meistaratitilinn sinn.

Nýliðinn og hlauparinn Sony Michel skoraði þrjú snertimörk fyrir New England Patriots í leiknum en hin snertimörkin skoruðu Phillip Dorsett og Rex Burkhead.





Patriots vann þar með alla níu heimaleiki sína á tímabilinu en nú þarf liðið að vinna á útivelli ætli það að ná í titilinn í ár. Það hefur ekki gengið nærri því eins vel í vetur.







Það gekk allt á afturfótunum í upphafi leiks hjá New Orleans Saints þrátt fyrir að liðið væri á heimavelli og mun sigurstranglegra en lið Philadelphia Eagles.

NFL-meistarar Philadelphia Eagles rétt skriðu inn í úrslitakeppnina og slógu síðan Chicago Bears út um síðustu helgi. Það stefndi því í nýtt ævintýri hjá Örnunum þegar liðið komst í 14-0 í upphafi leiks.

Einn öruggasti leikstjórnandi NFL-deildarinnar, Drew Brees, kastaði boltanum frá sér í fyrsta kasti leiksins og heimamenn komust ekkert áfram gegn vörn Philadelphia Eagles.

New Orleans Saints liðið hrökk hinsvegar í gang rétt fyrir hálfleik og tókst að minnka muninn í 14-10 fyrir hálfleik. Liðið byggði síðan ofan á það í seinni hálfleiknum og tókst að landa sigri.

Útherjinn Alshon Jeffery hjá Eagles fór reyndar illa með góða sendingu Nick Foles á lokamínútunum og úr varð tapaður bolti þegar allt stefndi í að Eagles væri að fara að skora.

Saint slapp með skrekkinn og tókst að tryggja sér sigurinn. Drew Brees átti tvær snertimarkssendingar og varnarmaðurinn Marcus Lattimore komst inn í tvær sendingar frá leikstjórnanda Philadelphia Eagles, Nick Foles.

Útherjinn Michael Thomas átti frábæran leik í liði New Orleans Saint en hann skoraði eitt snertimark og greip alls tólf sendingar frá Drew Brees.





Nick Foles hafði leitt Philadelphia Eagles liðið til sigurs í fjórum leikjum í röð í úrslitakeppninni en nú var lukkubankinn tæmdur og Ernirnir ná því ekki að verja titilinn í ár.

Úrslitaleikir deildanna fara fram á sunnudaginn kemur.







NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×