Lífið

Varaformaður VG selur einbýlishús sitt á Akureyri

Stefán Árni Pálsson skrifar
Edward H. Huijbens og fjölskyldan að leiðinni til Hollands.
Edward H. Huijbens og fjölskyldan að leiðinni til Hollands.
Edward H. Huijbens, varaformaður VG, hefur sett einbýlishús sitt við Kringlumýri á Akureyri á sölu og er ásett verð 54,9 milljónir.

Frá þessu greinir Edward í stöðufærslu á Facebook en hann og fjölskyldan eru að flytja til Hollands.

„Eftir fjögurra mánaða útlegð á hafinu í haust, í ljúfu frelsi internetsleysis, komum við fjölskyldan heim milli jóla og nýárs. Þá hófst næsta verkefni sem er að undirbúa flutning til Hollands. Ég fékk afbragðs tilboð um að leiða rannsóknarhóp á sviði menningarlandfræði við Wageningen háskóla og hef þar störf sem prófessor og stjórnandi þessa 30 manna hóps 1. febrúar. Þetta er mikið akademískt framfaraspor, en auðvitað með trega sem maður fer frá eyjunni ísa. Ég mun starfa sem varaformaður VG fram að landsfundi í haust, enda fjölskyldan ekki að elta mig út fyrr en þá og stutt er milli Amsterdam og Íslands,“ segir Edward.

Um er að ræða 151 fermetra einbýlishús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr á góðum stað á Brekkunni á Akureyri. Húsið var byggt árið 1960 og eru alls þrjú svefnherbergi í eigninni og tvö baðherbergi.

Í fasteignalýsingu eignarinnar segir að Edward og fjölskylda hans hafi gert miklar endurbætur á húsinu árið 2006 og er búið að endurnýja glugga, gler og útihurðir að mestu, rafmagn endurnýjað sem og innréttingar, gólfefni, skólplagnir ofl.

Hér að neðan má sjá myndir af eigninni.

Fallegt hús á góðum stað fyrir norðan.
Borðstofan og eldhúsið liggja samhliða.
Eldhúsið tekið í gegn árið 2006.
Setustofan skemmtileg hjá Edward og co.
Stórt hjónaherbergi.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×