Enski boltinn

Wagner hættur með Huddersfield

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Wagner kveður
Wagner kveður vísir/getty
David Wagner er hættur sem knattspyrnustjóri Huddersfield Town. Það var sameiginleg ákvörðun hans og félagsins að hann hætti störfum.

Þjóðverjinn tók við Huddersfield í nóvember 2015, upphaflega bara til bráðabrigða. Hann stýrði þeim upp í úrvalsdeildina vorið 2017 og hélt liðinu uppi í deild þeirra bestu á síðasta tímabili.

Huddersfield hefur gengið mjög illa á tímabilinu, er með 11 stig úr 22 leikjum á botni deildarinnar.

Mark Hudson verður bráðabirgðastjóri félagsins og mun stýra liðinu gegn Manchester City um næstu helgi.





 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×