Viðskipti erlent

Minnsti hagvöxtur í Þýskalandi í fimm ár

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Úr verksmiðju Porsche í Leipzig, en minni bílakaup Þjóðverja eru meðal annars sögð hafa áhrif á hagvöxt þar í landi.
Úr verksmiðju Porsche í Leipzig, en minni bílakaup Þjóðverja eru meðal annars sögð hafa áhrif á hagvöxt þar í landi. Getty/Marco Prosch
Hagvöxtur í Þýskalandi nam 1,5 prósentum á síðasta ári. Vöxturinn hefur ekki verið minni frá árinu 2013.

Gert hafði verið ráð fyrir að hagvöxtur ársins 2018 myndi nema um 1,8 prósentum, samanborið við 2,2 prósent í fyrra. Hins vegar eiga óvæntar aðstæður á alþjóðlegum mörkuðum og í bílaiðnaðinum að hafa sett strik í reikninginn fyrir Þjóðverja. Þannig dróst landsframleiðsla í Þýskalandi saman um 0,2 prósent á þriðja ársfjórðungi 2018, sem skrifað var á aukna einangrunarhyggju og viðskiptastríð.

Margir greinendur höfðu óttast að nýliðinn ársfjórðungur myndi einnig sýna fram á samdrátt - og þannig gefa til kynna að þýskur efnahagur væri í niðursveiflu. Þrátt fyrir að opinberar tölur frá þýsku hagstofunni liggi ekki fyrir benda útreikningar hagfræðinga til þess að það hafi örlað á hagvexti á síðasta ársfjórðungi. Talið er að hann hafi numið um 0,2 prósentum ef marka má breska ríkisútvarpið.

Sem fyrr segir má rekja hin hæga vöxt stærsta hagkerfis Evrópu til alþjóðlegra markaða og veikari bílaiðnaðar. Þýskir neytendur eru nú sagðir ólíklegri til að kaupa sér nýja bíla meðan óvissa ríkir um framtíð útblástursviðmiða. Þar að auki á lítið vatnsmagn, til að mynda í Rínarfljóti, að hafa torveldað vöruflutninga sem um leið bitnaði á landsframleiðslu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×