Innlent

Sveitarstjórnarmenn báðu alþingismenn um veggjöld

Kristján Már Unnarsson skrifar
Frá fundi umhverfis- og samgöngunefndar í dag. Njáll Trausti Friðbertssson, Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Ari Trausti Guðmundsson. Hanna Katrín Friðriksson er fremst og horfir til Ara.
Frá fundi umhverfis- og samgöngunefndar í dag. Njáll Trausti Friðbertssson, Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Ari Trausti Guðmundsson. Hanna Katrín Friðriksson er fremst og horfir til Ara. Stöð 2/Arnar Halldórsson.
Veggjöld! Veggjöld! Þetta voru skilaboðin sem alþingismenn fengu frá sveitarstjórnarmönnum af landsbyggðinni á þingnefndarfundi í dag, en þeir vilja meira fjármagn í jarðgöng og til að malbika sveitavegi. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2. 

Umhverfis- og samgöngunefnd, með Ara Trausta Guðmundsson sem starfandi formann um þessar mundir, ræðir þessa vikuna við fulltrúa landshlutasamtaka sveitarfélaga um veggjöld. Við sýndum nefndina á fundi með bæjarráði Seyðisfjarðar og fulltrúum Sambands sveitarfélaga á Austurlandi en á undan þeim komu fulltrúar höfuðborgarsvæðsins fyrir nefndina.

Aðalheiður Borgþórsdóttir, bæjarstjóri Seyðisfjarðar.Stöð 2/Arnar Halldórsson.
„Við vildum ræða við þá um veggjöld, eða gjöld til þess að flýta fyrir framkvæmdum við Fjarðarheiðargöng. Við erum að berjast fyrir Fjarðarheiðargöngum og erum búin að gera það í fjörutíu ár, þakka þér fyrir,“ sagði Aðalheiður Borgþórsdóttir, bæjarstjóri Seyðisfjarðar, eftir fundinn. 

Fulltrúar Norðurlands vestra, þau Unnur Valborg Hilmarsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, og Þorleifur Karl Eggertsson, formaður samtakanna og oddviti Húnaþings vestra, færðu þingnefndinni þau skilaboð að meira fé þyrfti í vegi eins og Skagastrandarveg og Vatnsnesveg.

Fulltrúar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, Unnur Valborg Hilmarsdóttir og Þorleifur Karl Eggertsson, á biðstofu nefndasviðs Alþingis.Stöð 2/Arnar Halldórsson.
„Norðurland vestra er með eitt hæsta hlutfall malarvega á þessum stofn- og tengivegum á landinu,“ segir Unnur Valborg. 

-Þannig að þið viljið meira malbik? 

„Meira malbik,“ svarar hún. 

Stefnt er að því að Alþingi klári samgönguáætlun eftir tvær vikur en aðalviðfangsefni þingnefndarinnar er að heyra afstöðu sveitarstjórnarmanna til veggjalda. 

Frá Fjarðarheiði en um hana liggur þjóðvegurinn til Seyðisfjarðar.Mynd/Stöð 2.
Skilaboðin sem Austfirðingar sendu eru að þeir styðja veggjöld. 

„Já, við gerum það, algjörlega.“

-Og þá til þess að fá Fjarðarheiðargöng? 

„Já, meðal annars. Og samgöngubætur í landinu. Það þarf náttúrlega að halda byggð í öllu landinu, ekki satt?,“ svarar Aðalheiður. 

Frá Vatnsnesvegi norðan Hvammstanga. Til hægri eru bærinn Geitafell og fjallið sem hann dregur nafn sitt af.Stöð 2/Egill Aðalsteinsson.
En hver er afstaða fulltrúa Norðurlands vestra til veggjalda? 

„Það er alveg ljóst að það þarf að gera stórátak í samgöngumálum bara á landinu öllu. Auðvitað er enginn hrifinn af auknum álögum, - það segir sig sjálft. En hins vegar ef það verður til þess að við náum að hraða samgönguframkvæmdum þá er það eitthvað sem maður verður að taka jákvætt í. Við getum í raun ekki sagt annað,“ svarar Unnur Valborg.

Séð niður til Seyðisfjarðar af Fjarðarheiði.Mynd/Stöð 2.
Á samgönguáætlun næstu fimm ára eru engir fjármunir til að grafa Fjarðarheiðargöng. 

„Nei, við fengum ekki Fjarðarheiðargöng á silfurfati, því miður. En það er einhver svona smáglufa. Við erum alltaf vongóð og hættum ekkert að berjast,“ segir bæjarstjóri Seyðisfjarðar.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:


Tengdar fréttir

Kynnir jarðgöng undir Setberg í Hafnarfirði

Samgönguráðherra hefur kynnt þann möguleika að setja Reykjanesbraut í Hafnarfirði að hluta í jarðgöng undir Setbergshamar. Göngin yrðu um fjórtánhundruð metra löng og talin kosta tólf milljarða króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×