Handbolti

Ekkert drama í vel samstilltum íslenskum landsliðshópi

Tómas Þór Þórðarson í München skrifar
Ólafur Gústafsson er klár í slaginn.
Ólafur Gústafsson er klár í slaginn. vísir/Sigurður már
Ólafur Gústafsson kveðst klár í slaginn fyrir leikinn á móti Japan í dag.Ólafur Gústafsson, varnarmaður íslenska landsliðsins í handbolta, fór snemma meiddur af velli á móti Barein en kveðst klár í slaginn fyrir leikinn á móti Japan sem hefst klukkan 14.30 að íslenskum tíma í dag.

„Ég býst við því. Við erum að fara að æfa á eftir og þá kemur það betur í ljós. Eins og mér líður núna held ég að ég sé bara góður. Ég fékk að hvíla í leiknum á móti Barein sem var bara gott,“ segir Ólafur sem var lítt hrifinn af fautalegri spilamennsku Bareinmanna.

„Það hefði kannski komið einhver meiri hiti í mig ef ég hefði verið inn á, ég veit það ekki. Þeir spiluðu glórulausan handbolta á köflum. Þeir skutu í hausinn á Bjögga og voru að kýla menn hægri vinstri. Það var fínt að maður fékk bara að kæla á bekknum,“ segir Ólafur.

Ólafur er fyrrverandi stórskytta og kann því þau fræði vel en nú sér hann um að loka á skyttur mótherjanna.

„Ég hef gaman að þessu. Við höfum verið að standa vörnina ágætlega í fyrstu þremur leikjunum. Það vantaði smá upp á í fyrstu tveimur leikjunum en þá vorum við að kljást við erfiðari leikmenn. Ég spilaði lítið á móti Barein en Danni, Ýmir og Arnar voru góðir. Þetta lítur vel út fyrir framhaldið,“ segir Ólafur.

Íslenski hópurinn er ungur með meðalaldur upp á 24,3 ár og margir að fara á sitt fyrsta mót. Menn eru því sumir hverjir að kynnast betur en hótellífið er ljúft að sögn Ólafs.

„Þetta er búið að vera mjög fínt. Ég er orðinn smá heimalingur á hinum og þessum herbergjum, meðal annars sjúkraþjálfaraherberginu. Það er mjög góður mórall í þessum hóp. Það er ekkert vesen eða drama á okkur. Hér eru bara allir slakir,“ segir Ólafur Gústafsson.

Klippa: Óli Gúst - Górulaus handbolti

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×