Handbolti

Átta ár síðan strákarnir okkar voru skíthræddir við japanska liðið

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Guðmundur á hliðarlínunni á HM 2011.
Guðmundur á hliðarlínunni á HM 2011. vísir/getty
Á morgun eru nákvæmlega átta ár liðin frá eftirminnilegum leik gegn Japan á HM árið 2011. Óttinn við lið Japan fyrir þann leik var mikill en reyndist óþarfur er á hólminn var komið.

Japan mætti með skemmtilegt lið til Svíþjóðar. Miklir loftfimleikamenn sem sendu boltann vængja á milli í loftinu. Mjög skemmtilegt á að horfa.

Japan kom Noregi á óvart og stóð í þeim lengi vel. Á endanum höfðu Norðmenn sex marka sigur, 35-29. Í næsta leik fóru Japanir á kostum og unnu glæsilegan þriggja marka sigur, 33-30, á Austurríki sem var með mjög frambærilegt lið á þeim tíma. Staðan í hálfleik var 18-11 fyrir Japan.

Liðið lék á als oddi og það var ótrúlegt í raun og veru að fylgjast með flottu liði Austurríkis standa ráðþrota fyrir framan japönsku sóknina.

Óli Stef var tæpur en undirbúningurinn frábær. Guðmundur var vissulega með réttu svörin.
Guðjón Valur Sigurðsson sagðist hafa talað við félaga sinn í austurríska liðinu eftir leikinn og sá sagðist hafa haft það á tilfinningunni allan leikinn að þeir væru manni færri. Svo fljótir voru Japanarnir.

Guðmundur Guðmundsson var landsliðsþjálfari þá líkt og núna. Venju samkvæmt tók hann verkefnið mjög alvarlega og fagnaði því sérstaklega að fá aukadag til þess að undirbúa sig fyrir leikinn.

Þjálfarinn sagði menn vera meðvitaða um hversu strembið verkefnið væri og að undirbúningur yrði eins góður og mögulegt væri. Kunnuglegt stef hjá þjálfaranum vandvirka.

Undirbúningurinn skilaði heldur betur sínu því Gummi og strákarnir voru svo sannarlega með öll svörin. Svarið gegn sókn Japana var að stíga út úr vörninni. Þá vissu Japanir ekkert hvað átti að gera. Þetta var ekkert svo flókið eftir allt saman.

Strákarnir keyrðu yfir Japani sem vissu ekki sitt rjúkandi ráð.
Eftir fimmtán mínútna leik var staðan 15-2 fyrir Ísland og leik í raun lokið. Strákarnir stálu öllum boltum og keyrðu hraðaupphlaup miskunnarlaust í andlit Japananna.

Lokatölur 36-22 og 22-8 í hálfleik. Verkefnið var tekið mjög alvarlega allan tímann og slíkt hið sama verður örugglega upp á teningnum á eftir.

Björgvin Páll Gústavsson og Aron Pálmarsson eru einu leikmennirnir á HM núna sem spiluðu þann leik. Aron skoraði eitt mark en Bjöggi varði 10 skot og var með 56 prósent markvörslu. Vonandi verða þeir í stuði á eftir.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×