Íslenski boltinn

Sævar Atli skoraði fjögur gegn ÍR

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Leiknismenn unnu granna sína í ÍR
Leiknismenn unnu granna sína í ÍR Vísir/Stefán
Sævar Atli Magnússon skoraði fjögur mörk í stórsigri Leiknis á ÍR í A-riðli Reykjavíkurmótsins. Fjölnir vann eins marks sigur á Val.

Leiknir skoraði fimm mörk í leiknum í Egilshöllinni í dag og komu þau öll í seinni hálfleik. Sævar Atli skoraði fjögur af fimm mörkum Leiknismanna í Breiðholtsslagnum.

Fjölnir, sem féll úr Pepsideildinni í haust, vann eins marks sigur á Íslandsmeisturum Vals. Eina mark leiksins kom á 35. mínútu en það var Kristófer Óskar Óskarsson sem skoraði markið. 

ÍR hefur tapað öllum þremur leikjum sínum í mótinu og er á botni A-riðils. Fjölnir er hins vegar með fullt hús stiga eftir þrjá leiki.

Valur hefur aðeins spilað tvo leiki og er með þrjú stig eins og Leiknir. Með þeim í riðlinum er Víkingur Reykjavík.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×