Handbolti

Twitter eftir sigurinn: „Dómarinn eins og pabbi sem er að stjórna leik út í garði í barnaafmæli“

Anton Ingi Leifsson skrifar
Strákarnir fagna.
Strákarnir fagna. vísir/epa
Ísland vann frábæran sigur á Makedóníu, 24-22, er liðin mættust í lokaleik riðilsins á HM í handbolta en leikið er í Munchen í Þýskalandi.

Ísland var tveimur mörkum undir í hálfleik en í síðari hálfleik þétti liðið varnarleikinn enn frekar og Gísli Þorgeir Kristjánsson og Arnór Þór Gunnarsson voru einna öflugastir sóknarlega.

Það var líf og fjör á Twitter enda mikið undir og þar var slegið á létta strengi í takt við fúlustu alvöru. Grínistinn Steindi Jr. skildi ekkert í dómurunum, landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson var ánægður með handboltastrákana okkar og þar fram eftir götunum.

Hér að neðan er brot af því besta.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×