Handbolti

Einkunnir strákanna okkar á móti Makedóníu í kvöld: Arnór í heimsklassa og fimm með fimmur

Arnór Þór Gunnarsson skoraði tíu mörk og fékk sex í einkunn, eða fullt hús. Frábær leikur og frábært mót hjá honum. Hér fagnar marki einu marka sinna.
Arnór Þór Gunnarsson skoraði tíu mörk og fékk sex í einkunn, eða fullt hús. Frábær leikur og frábært mót hjá honum. Hér fagnar marki einu marka sinna. Vísir/Getty
Íslenska handboltalandsliðið vann dýrmætan tveggja marka sigur á Makedóníu, 24-22, í fimmta og síðasta leik sínum í riðlakeppninni á heimsmeistaramótinu í Þýskalandi og Danmörku. Leikurinn var hreinn úrslitaleikur um sæti í milliriðli.

Með sigrinum er öruggt að þetta unga lið Íslands verður meðal tólf efstu liðanna á heimsmeistaramótinu í ár.

Íslenska liðið var í vandræðum framan af leik og þá einkum í sóknarleiknum sem gekk ekki vel í byrjun. Hinn ungi Gísli Þorgeir Kristjánsson breytti því með frábærri innkomu.

Arnór Þór Gunnarsson skoraði tíu mörk í leiknum þar af fjögur þeirra eftir að hafa skorað í tómt markið á meðan Makedónar voru að skipta markverði sínum aftur inn á völlinn.

Íslenska liðið fékk aðeins 9 mörk á sig í seinni hálfleiknum og vann hann með fjórum mörkum eða 13-9. Varnarleikur íslenska liðsins var frábær á móti stórum, þungum og sterkum mótherjum.

Líkt og áður þá gefur íþróttadeild Vísis og Stöðvar tvö leikmönnum og þjálfaranum einkunnir fyrir frammistöðu sína.

Arnór Þór Gunnarsson var besti leikmaður íslenska liðsins í kvöld að mati okkar en hann fær fullt hús enda var hann í heimsklassa. Fjórir leikmenn og þjálfarinn fá líka fimm í einkunn fyrir frammistöðu sína í kvöld.

Það eru markvörðurinn Björgvin Páll Gústavsson, ungi leikstjórnandinn Gísli Þorgeir Kristjánsson og varnarmennirnir Arnar Freyr Arnarsson og Ólafur Gústafsson.

Leikmenn og þjálfarar fá einkunn á bilinu 1-6 með umsögn, en neðst í fréttinni má sjá hvað hver einkunn þýðir.



Einkunnir Íslands gegn Makedóníu:

- Byrjunarlið Íslands í leiknum -

Björgvin Páll Gústavsson, mark - 5

(13 varin skot- 55:32 mín.)

Var hans langbesti leikur í langan tíma á móti alvöru liði. Minnti okkur svolítið á það að hann er enn þá til eins og í Peking 2008.

Stefán Rafn Sigurmannsson, vinstra horn - 2

(1 mark - 30:00 mín.)

Frábært eintak en kæruleysi í vítakasti á ögurstundu á ekki að sjást. Frábær leikmaður en þetta viljum við ekki sjá.

Aron Pálmarsson, vinstri skytta - 4

(2 mörk - 51:14 mín.)

Ekki hans besti landsleikur en hins vegar afar mikilvægur fyrir liðið og stýrði því vel. Má ekki gleyma því að hann var tekinn afar föstum tökum og var því lengi vel í vandræðum sóknarlega.

Elvar Örn Jónsson, leikstjórnandi - 4

(2 mörk - 39:56 mín.)

Frábær varnarlega. Auðvitað viljum við fá meira frá honum sóknarlega en það má ekki gleyma að hann er á stóra sviðinu í fyrsta skiptið og hann hefur verið frábær í öllum leikjum Íslands á mótinu.

Ómar Ingi Magnússon, hægri skytta - 3

(2 mörk - 12:05 mín.)

Hefur verið í miklum vandræðum sóknarlega. Enginn efast um hæfileikana en auðvitað er hann ungur. Á komandi árum mun hann væntanlega bæta við sig. Engu að síður góður leikmaður sem á að geta gert betur.

Arnór Þór Gunnarsson, hægra horn - 6

(10 mörk - 55:08 mín.)

Var að spila sinn hundraðasta landsleik og var magnaður. Algjörlega frábær. Svona eintök eru gulls ígildi og maður hugsar bara þegar maður sér hann inn á vellinum eins og í þessum leik. Mallarnir, er hægt að finna fleiri slíka?

Arnar Freyr Arnarsson, lína - 5

(2 mörk - 58:07 mín.)

Hans langbesti leikur í keppninni. Var frábær varnarlega og skilaði sínu sóknarlegsa. Núna var hann aftar en í síðustu leikjum og allt annað að sjá til hans. Frábær frammistaða.

Ólafur Gústafsson, vörn  - 5

(3 stopp - 36:03 mín.)

Var algjörlega magnaður í varnarleik íslenska liðsins. Rétt eins og hjá kollega hans í miðri vörninni þá hjálpaði það honum að þeir voru ekki eins framarlega og í síðustu leikjum. Varnarleikur hans í kvöld var meistarastykki.

Gísli Þorgeir Kristjánsson átti frábæra innkomu.Vísir/EPA
- Menn sem komu inn af bekknum í leiknum -

Gísli Þorgeir Kristjánsson, leikstjórnandi - 5

(1 mark - 21:54 mín.)

Kom inn í fyrri hálfleik þegar Makedónar voru svolítið búnir að slá okkur út af laginu með 5:1 vörninni. Hraði hans og kraftur gjörbreytti leiknum fyrir íslenska liðið. Átján ára gamall veit hann upp á hár hverjir eru hans styrkleikar og hann notaði þá í leiknum út í yrstu æsar. Það var unun að horfa á hann spila þennan leik.

Bjarki Már Elísson, vinstra horn - 4

(2 mörk - 30:00 mín.)

Kom inn í leikinn í hálfleik fyrir Stefán Rafn. Gríðarlega öflugur af teig og skoraði mörk sem skiptu verulegu máli.

Ólafur Guðmundsson, vinstri skytta - 4

(0 mörk - 9:20 mín.)

Var frábær varnarlega. Það er ekki einfalt mál að vera skipt inn og út í vörn og sókn stöðugt allan leikinn. Hann stóðst það álag. Þótt að hann hafi ekki skorað þá var hann að spila vel og fiskaði víti á mikilvægum tíma. Varnarleikur hans var upp á tíu.

Teitur Örn Einarsson, hægri skytta - 4

(1 mark - 14:14 mín.)

Það er ekki einfalt mál fyrir ungan mál að koma inn á þetta svið og eiga að standa sig í stykkinu. Hann æfði ekki með liðinu fyrir þetta mót, var ekki valinn, en það er eitthvað sem segir okkur að þessi Teitur eigi eftir að vera heitur á næstu árum.

Sigvaldi Guðjónsson, hægra horn - spilaði of lítið

Daníel Þór Ingason, vörn - spilaði ekkert

Ýmir Örn Gíslason, lína - spilaði ekki

Ágúst Elí Björgvinsson, mark - spilaði ekki

Guðmundur Guðmundsson gaf sig allan í leikinn og tókst að lesa Makedónana og breyta leiknum.Vísir/EPA
Guðmundur Guðmundsson, þjálfari - 5

Var trúr sinni sannfæringu og notaði hyggjuvitið og reynsluna í aðdraganda mótsins. Brást strax við í fyrri hálfleik þegar Makedónía fór í 5:1 vörn. Reyndi að finna lausnir. Seinni hálfleikurinn var í raun meistarastykki varnarlega. Hann lét strákana keyra á Makedóníumennina þegar hann vissi að orkan þeirra var að klárast. Gleymum því ekki að hann er í raun bara með krakka í liðinu sínu sem hann þarf að gera að mönnum á næstu árum. Ef einhverjum tekst það þá tekst honum það.

Útskýring á einkunnum:

6 - Heimsklassa frammistaða

5 - Frábær frammistaða

4 - Góð frammistaða

3 - Sæmileg frammistaða - skilaði sínu

2 - Ekki nógu góð frammistaða

1 - Slakur leikur


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×