Enski boltinn

Robertson framlengdi til fimm ára

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Robertson verður í rauðu næstu fimm árin
Robertson verður í rauðu næstu fimm árin vísir/getty
Skoski varnarmaðurinn Andy Robertson skrifaði í dag undir framlengingu á langtímasamningi sínum við Liverpool.

Robertson hefur verið frábær það sem af er tímabili og er lykilmaður í toppliði Liverpool sem hefur aðeins fengið á sig 10 mörk í 22 deildarleikjum.

Liverpool hefur nú tryggt sér krafta Robertson til ársins 2024.

Hinn 24 ára Robertson kom til Liverpool sumarið 2017 frá Hull. Hann kostaði félagið í kringum átta milljónir punda og hefur farið langt fram úr þeim verðmiða á einu og hálfu ári.

„Um leið og félagið kom til mín þá var ég tilbúinn að skrifa undir. Ég vil vera hér áfram og það var skrifað undir um leið og það kom tilboð á borðið,“ sagði sá skoski við heimasíðu Liverpool.














Fleiri fréttir

Sjá meira


×