Innlent

Flestar úrkomutegundirnar koma við sögu um helgina

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Snjókoma, slydda, él og rigning er allt í veðurkortum helgarinnar.
Snjókoma, slydda, él og rigning er allt í veðurkortum helgarinnar. vísir/vilhelm
Veðrið næstu tvo sólarhringanna verður ansi breytilegt og má búast við því að flestar úrkomutegundir sem í boði eru komi við sögu að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands.

Þar kemur fram að í dag sé gert ráð fyrir éljum ansi víða en við suður- og suðvesturströndina verði úrkoman frekar í ætt við skúrir. Þá bætir í vind um vestanvert landið í fyrramálið en undir hádegi snýst vindur til suðvestan áttar og kólnar hratt. Mun úrkoman þá líklega breytast í slyddu eða snjókomu.

Síðdegis verður svo úrkoman komin yfir í él en skilin verða líklega ekki komin austur af landinu fyrr en snemma á sunnudagsmorgun. Það verður svo áfram éljagangur sunnan- og vestan til en það léttir til á Norðausturlandi auk þess sem mun frysta um mest allt land.

Svona umhleypingum í veðrinu fylgir oft hálka svo þeir sem stefna á ferðalög og útivist um helgina ættu að hafa það í huga.

Veðurhorfur á landinu:

Austlæg átt, 5-13 m/s og víða skúrir eða él í dag, en hægviðri og birtir til NA-lands seinnipartinn. Suðaustlægari í nótt og hvessir, 10-18 í fyrramálið og rigning eða slydda V-til. Snýst í suðvestan 8-15 með slyddu eða snjókomu um hádegi og síðar éljum, fyrst V-til á landinu. Hiti 0 til 5 stig syðst, en frost annars 1 til 12 stig, kaldast í innsveitum NA-til. Víða vægt frost seint á morgun.

Á laugardag:

Suðaustan 10-18 m/s, rigning eða slydda og hiti 0 til 5 stig, en þurrt NA-til og vægt frost. Suðvestlægari seinnipartinn með snjókomu eða slyddu, en síðar éljum og kólnandi veðri, fyrst SV-til.

Á sunnudag:

Suðvestan 8-18 m/s og él, en léttskýjað á N- og A-landi, hvassast við SV-ströndina. Frost 0 til 8 stig, kaldast NA-til. Vaxandi suðaustanátt og snjókoma, en síðar rigning S- og V-lands um kvöldið og hlýnar.

Á mánudag:

Hvöss suðaustlæg átt og rigning eða slydda framan af degi og hiti 0 til 5 stig, en lægir síðan og rofar til og kólnar, fyrst V-til.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×