Innlent

Pylsustopp í Staðarskála reyndist hjónum að norðan vel

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Vegasjoppan N1 í Staðarskála er ein þekktasta og vinsælasta vegasjoppa landsins.
Vegasjoppan N1 í Staðarskála er ein þekktasta og vinsælasta vegasjoppa landsins. FBL/Gva
Íslensk getspá greinir frá því að eldri maður af Suðurlandi og hjón að norðan hafi dottið í lukkupottinn á dögunum og orðið milljónum króna ríkari. Í tilkynningu eru viðkomandi sögð fyrrstu milljónamæringar ársins 2019.

„Fyrsti vinningshafinn var eldri maður af Suðurlandi. Sá var með 3. vinning í fyrsta útdrætti ársins í EuroJackpot, vinning upp á rúmlega 14,5 milljónir króna. Er þetta annar stóri vinningurinn sem kemur til Íslands á aðeins 4 vikum. Miðann hafði hann keypt í Krambúðinni á Selfossi. Vinningshafinn sagðist vera mjög svo ánægður eldri borgari og að vinningurinn kæmi sér afar vel enda geti það verið snúið að ná endum saman á lífeyrinum einum saman,“ segir í tilkynningunni.

Stuttu seinna hafi hjón að norðan mætt með miðann sinn í húsakynni Íslenskrar getspár í Laugardalnum. Þau hefðu átt leið fram hjá Staðarskála á laugardag þegar að hungrið sagði skyndilega til sín.

„Var því ákveðið að stoppa og fá sér að pylsu. Þau voru að klára að borga þegar að konan allt í einu mundi eftir því að hún hafi ætlað sér að kaupa Lottómiða fyrir helgina. Honum var því bætt við á síðustu stundu og sem betur fer, því á miðanum leyndust rétt tæpar 22 milljónir. Það var ekki fyrr en í vikunni að maðurinn átt erindi út í sjoppu að hann lét rúlla miðanum í gegnum Lottókassann sem söng þá svo fallega fyrir hann. Hann dreif sig heim til að segja konu sinni fréttirnar góðu og framundan var svo svefnlítil nótt.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×