Handbolti

Íslenska landsliðið það langyngsta í milliriðlinum en Danir reka lestina á tveimur listum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gísli Kristjánsson er eini leikmaður íslenska landsliðsins sem hefur ekki haldið upp á tvítugsafmælið sitt. Haukur Þrastarson er yngri en hann er enn utan hóps.
Gísli Kristjánsson er eini leikmaður íslenska landsliðsins sem hefur ekki haldið upp á tvítugsafmælið sitt. Haukur Þrastarson er yngri en hann er enn utan hóps. Getty/ TF-Images
Tólf landslið eru komin áfram í milliriðil á heimsmeistaramótinu í handbolta í Þýskalandi og Danmörku og eiga því enn möguleika á heimsmeistaratitlinum.

Íslenska landsliðið er eitt af þeim liðum eftir að strákarnir okkar flottan endurkomusigur á Makedóníu í lokaumferð riðlakeppninnar.

Það er fróðlegt að bera saman tölur yfir aldur, hæð og þyngd hjá tólf bestu liðum heimsmeistaramótsins eða þeim landsliðum sem komust í milliriðlana tvo.

Íslenska landsliðið er langyngsta liðið í milliriðlinum en meðalaldur liðsins eru 24,9 ár eða einu og hálfu ári minna en hjá Norðmönnum sem eru næstyngstir.

Danir voru elstir þegar riðlakeppnin hófst en hafa gert breytingar á sínu liði. Danir yngdu aðeins upp hjá sér og duttu niður í 2. sætið á eftir Spánverjum.

Það vekur líka athygli að Danir eru bæði lægstir og léttastir samkvæmt tölum yfir leikmannalista þjóðanna á heimasíðu mótsins.

Íslenska landsliðið kemur mun betur út hvað varðar meðalhæð (4. sæti, 192 sm) heldur en hvað varðar meðalþyngd (9. sæti, 92 kg). Strákarnir fá tíma til að bæta á sig kílóum á næstu árum sem ætti að hjálpa okkar mönnum í baráttunni við bestu handboltamenn heims.

Ungverjar eru með hæsta liðið en næstir koma Þjóðverjar og Frakkar. Brasilíumenn eru aftur á móti með þyngsta liðið í milliriðlinum.

Hér fyrir neðan má sjá tölur liðann og röð þeirra meðal tólf liða milliriðlanna á HM 2019.





Íslenska landsliðið er ungt og það leikur sér. Strákarnir fagna hér sigri á Makedóníu í gær.Getty/ TF-Images
Meðalaldur liðanna í milliriðlunum á HM í handbolta 2019:

1. Spánn 29,7

2. Danmörk 29,4

3. Króatía 28,9

4. Brasilía 28,1

4. Ungverjaland 28,1

6. Frakkland 27,9

7. Svíþjóð 27,6

7. Þýskaland 27,6

9. Túnis 27,2

10. Egyptaland 26,9

11. Noregur 26,3

12. Ísland 24,9

Meðalhæð liðanna í milliriðlunum á HM í handbolta 2019:

1. Ungverjaland 195 sm

2. Þýskaland 194 sm

3. Frakkland 193 sm

4. Spánn 192 sm

4. Króatía 192 sm

4. Ísland 192 sm

4. Noregur 192 sm

8. Svíþjóð 191 sm

8. Brasilía 191 sm

10. Túnis 190 sm

10. Egyptaland 190 sm

12. Danmörk 188 sm

Meðalþyngd liðanna í milliriðlunum á HM í handbolta 2019:

1. Brasilía 99 kg

2. Þýskaland 97 kg

2. Ungverjaland 97 kg

4. Króatía 96 kg

4. Svíþjóð 96 kg

6. Frakkland 95 kg

6. Noregur 95 kg

8. Spánn 93 kg

9. Túnis 92 kg

9. Ísland 92 kg

11. Egyptaland 91 kg

12. Danmörk 88 kg




Fleiri fréttir

Sjá meira


×