Sigurganga Solskjær heldur áfram

Dagur Lárusson skrifar
Solskjær hefur byrjað ótrúlega með Man. Utd.
Solskjær hefur byrjað ótrúlega með Man. Utd. vísir/getty
Sigurganga Manchester United hélt áfram gegn Brighton í dag þar sem Paul Pogba og Marcus Rashford voru enn og aftur á skotskónum.

 

United byrjaði leikinn af miklum krafti og voru liðsmenn Brighton í miklum vandræðum með pressuna til að byrja með. Eftir mikil læti fyrstu mínúturnar róaðist þó yfir leiknum.

 

Það var síðan á 27. mínútu þar sem Paul Pogba fékk boltann rétt fyrir utan teig og fór þaðan inná teig með boltann þar sem var brotið á honum og dæmt víti. Pogba fór sjálfur á punktinn og skoraði af miklu öryggi.

 

Rétt fyrir leiklé skoraði Marcus Rashford síðan stórglæsilegt mark og kom því United í 2-0 forystu.

 

Leikurinn róaðist heldur niður í seinni hálfleiknum og var lítið um færi til að byrja með. Þegar fór að líða á hálfleikinn fóru gestirnir þó aðeins að færa sig framar á völlinn sem endaði með því að Pascal Gross minnkaði muninn með laglegu marki.

 

Nær komust gestirnir þó ekki og því enn einn sigur United undir stjórn Ole Gunnar staðreynd.

 



 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira